Fotbolti.net
23.09.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Vill sjá Messi vinna Ballon d'Or

Vill sjá Messi vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Argentínski landsliðsfyrirliðinn Cristian Romero er hress eftir 2-1 sigur Atlético Madrid í grannaslagnum gegn Real Madrid í spænsku deildinni um helgina.
Yfirlýsing Real Madrid: Tapið einkenndist af lélegri dómgæslu
TENGT EFNI

Yfirlýsing Real Madrid: Tapið einkenndist af lélegri dómgæslu

Real Madrid kennir dómgæslunni um tapið þar sem félagið heldur því fram að tveir leikmenn Atlético hafi átt að vera reknir af velli í fyrri hálfleik og er Romero annar þeirra.

„Madríd er rauð og hvít! Ekki leyfa neinum að taka fókusinn af þeirri staðreynd. Við verðskulduðum þessi þrjú stig og rúmlega það! Við sýndum stolt, vinnusemi og svo mikið hjarta til að vinna þennan leik," skrifaði Romero undir nýjustu færslu sinni á Instagram.

Eftir sigurinn gegn Real svaraði Romero spurningum og ræddi Lionel Messi sem lagði landsliðsskóna á hilluna eftir HM í sumar. Romero tók við fyrirliðabandinu af Messi, sem spilar kveðjuleik sinn fyrir Argentínu í landsleikjahlénu.

„Leo Messi ætti að fá Gullboltann á hverju ári þar til hann leggur skóna á hilluna, það er klárt mál. Það er enginn eins og hann. Þegar hann leggur skóna á hilluna þá mega hinir keppast um verðlaunin," sagði Romero við ESPN eftir lokaflautið í Madrídarslagnum.

„Í framtíðinni mun leikmaðurinn sem er stærsta vörumerkið hverju sinni vinna, því það er það sem þessi verðlaun eru byrjuð að snúast um."

Romero hélt áfram að tala um Messi og hrósaði honum í hástert bæði sem fótboltamanni og einstaklingi. „Þrátt fyrir að vera besti fótboltamaður í heimi er hann ótrúlega hógvær á hátt sem ekki margir eru. Það er eitt af því sem sker hann sérstaklega út frá öðrum."

Atletico skaut föstum skotum á Mourinho
TENGT EFNI

Atletico skaut föstum skotum á Mourinho




Vill sjá Messi vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Vill sjá Messi vinna Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.