Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. mars 2020 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Grealish: De Bruyne er uppáhaldsleikmaðurinn minn
Mynd: Getty Images
Aston Villa mætir Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins í dag. Jack Grealish verður í byrjunarliði Villa og mun heyja áhugaverða baráttu við Kevin De Bruyne á miðsvæðinu.

Grealish hefur mikið álit á De Bruyne og segir belgíska miðjumanninn vera besta leikmann ensku úrvalsdeildarinnar.

„Það er alltaf sérstakt að spila við Kevin De Bruyne, hann er uppáhadsleikmaðurinn minn," sagði Grealish.

„Mér finnst hann vera ótrúlegur leikmaður, hann er hæglega besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessari stundu. Þetta er leikmaður sem ég lít upp til og reyni að læra af.

„Þetta verður mjög erfiður leikur fyrir okkur. Við þurfum að gera okkar besta og krossleggja fingur."

Athugasemdir
banner
banner