Marcus Rashford, framherji Manchester United, segir að Jadon Sancho sé frábær leikmaður.
Búist er við því að hinn tvítugi Sancho yfirgefi Borussia Dortmund þegar tímabilið í Þýskalandi klárast og þegar félagaskiptaglugginn opnar að nýju.
Sancho, sem hefur slegið í gegn í Þýskalandi, hefur verið sterklega orðaður við Manchester United, en félög eins og Chelsea, Liverpool, Barcelona og Real Madrid hafa einnig verið nefnd til sögunnar.
Rashford, sem er að jafna sig á meiðslum, svaraði spurningum aðdáenda í Instagram Live hjá Bleacher Report. Hann var spurður út í Sancho.
„Sancho er frábær leikmaður, hann er af nýrri kynslóð. Það er spennandi að horfa á hann verða að þeim leikmanni sem hann er þróast í að verða."
„Ég held að við myndum tengja vel saman," sagði hinn 22 ára gamli Rashford, en hann og Sancho leika saman í enska landsliðinu.
Athugasemdir