01.05.21 - 13:20
Aksentije Milisic
England: Man City skipti um gír í hálfleik

Leikmenn City fagna fyrsta marki leiksins.

Mynd: EPA

Torres setti eitt.

Crystal Palace 0 - 2 Manchester City
0-1 Sergio Aguero ('57 )
0-2 Ferran Torres ('59 )
Crystal Palace og Manchester City áttust við í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en leikið var á Selhurst Park í London.

Leikurinn byrjaði mjög rólega og heimamenn náðu að halda gestunum í skefjum. Manchester City náði ekki einu skoti á markið fyrsta hálftíma leiksins. Það voru í raun heimamenn sem fengu bestu færin í fyrri hálfleiknum.
Christian Benteke komst tvisvar sinnum í gott færi en Ederson gerði vel í að verja frá honum. Gabriel Jesus skoraði á 36. mínútu en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Þegar flautað var til leikhlés var staðan markalaus 0-0.
City liðið skipti um gír í síðari hálfleiknum. Á 57. mínútu kom fyrsta mark leiksins og það gerði Sergio Aguero. Hann fékk þá góða sendingu frá Benjamin Mendy og kláraði Argentínumaðurinn færið frábærlega upp í nærhornið. Annað mark Aguero á tímabilinu.
Tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Ferran Torres forystu gestanna með vinstri fótar skoti fyrir utan teig. Stuttu síðar átti Raheem Sterling skot í stöngina en það var allt annað að sjá City liðið í síðari hálfleiknum.
City hefði auðveldlega geta bætt við þriðja markinu en niðurstaðan var öruggur 2-0 sigur. Liðið er nú með þrettán stiga forystu á granna sína í Man Utd á meðan Crystal Palace er í þrettánda sæti deildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 5 | +8 | 15 |
| 2 | Arsenal | 5 | +4 | 12 |
| 3 | Brighton | 5 | +11 | 10 |
| 4 | Brentford | 5 | +6 | 9 |
| 5 | Leeds | 5 | +4 | 9 |
| 6 | Liverpool | 5 | +3 | 9 |
| 7 | Everton | 5 | +3 | 9 |
| 8 | Hull City | 5 | +2 | 8 |
| 9 | Newcastle | 5 | 0 | 8 |
| 10 | Chelsea | 5 | -2 | 7 |
| 11 | Ipswich Town | 5 | -4 | 6 |
| 12 | Man Utd | 5 | 0 | 5 |
| 13 | Nott. Forest | 5 | -1 | 5 |
| 14 | Sunderland | 5 | -4 | 4 |
| 15 | Crystal Palace | 5 | -5 | 4 |
| 16 | Aston Villa | 5 | -5 | 4 |
| 17 | Bournemouth | 5 | -2 | 3 |
| 18 | Coventry | 5 | -9 | 3 |
| 19 | Fulham | 5 | -3 | 2 |
| 20 | Tottenham | 5 | -6 | 2 |