Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. maí 2021 11:40
Aksentije Milisic
Real sagt hafa áhuga á Lewandowski
Mynd: Getty Images
Heimildir frá Þýskalandi segja að Real Madrid hafi áhuga á að fá framherjann magnaða, Robert Lewandowski, frá Bayern Munchen.

Þessi pólski framherji hefur átt magnað tímabil fyrir Bayern og hann á enn möguleika á að slá markamet Gerd Muller í þýsku úrvalsdeildinni.

Hinn 32 ára gamli Lewandowski á tvö ár eftir af samningi sínum við þýsku risanna en hann hefur reglulega verið orðaður við Real Madrid frá því hann gekk til liðs við Bayern Munchen frá Dortmund árið 2013.

Samkvæmt SkySports í Þýskalandi er Bayern opið fyrir því að selja Lewandowski fyrir 52 milljónir punda en félagið vill rétta skútuna af eftir tekjutapið á Covid-19 tímum.

Pini Zahavi, umboðsmaður Lewadowski, er sagður vera hlusta á tilboð í leikmanninn.

Real hefur einnig áhuga á Erling Braut Haaland og sagði umboðsmaður hans, Mino Raiola, að Real Madrid hafi efni á Norðmanninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner