Glenn stoltur af liðinu: Sýndu að þær geta náð í góð úrslit á útivelli


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Johnathan Glenn þjálfari Keflavíkur var gríðarlega stoltur af sínu liði sem vann útisigur gegn Þór/KA í dag.
„Við stjórnuðum leiknum mjög vel, við vissum að þær yrðu hættulegar, þær eru með gott lið og eru með hættulega leikmenn. Við vissum að við þurftum að vera vel skipulagðar og nýta tækifærin," sagði Johnathan.
„Allir leikir í þessari deild eru erfiðir, við vissum að þetta yrði erfitt, að spila á útivelli annan leikinn í röð, mikið ferðalag svo stelpurnar eiga hrós skilið, þær sýndu að þær geta spilað vel og verið ákveðnar og náð í góð úrslit á útivelli."
Jonathan ítrekaði hversu stoltur hann sé af leikmönnum liðsins.
„Ég er svo stoltur af leikmönnunum, þær lögðu hart að sér á undirbúningstímabilinu svo þær eiga hrós skilið."






