Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
   fös 01. maí 2026 12:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dagur Orri spáir í 2. umferð Lengjudeildarinnar
Dagur Orri í leik með Val.
Dagur Orri í leik með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Það eru fimm leikir á dagskrá í Lengjudeildinni í dag og byrjar sá fyrsti þeirra eftir rúman klukkutíma. Önnur umferðin er framundan og við fengum Dag Orra Garðarsson, sóknarmann Vals, til að spá í spilin.

Grindavík 1 - 2 Njarðvík (14:00 í dag)
Alvöru Suðurnesjaslagur sem endar með sigri Njarðvíkur.

Afturelding 5 - 1 Völsungur (16:00 í dag)
Heimamenn verða með mikla yfirburði i þessum leik þar sem leikurinn endar 5-1 fyrir Aftureldingu.

Grótta 3 - 2 Leiknir R. (19:15 í kvöld)
Fyrsti heimaleikur Gróttu í 1. deild í ár, þeir eru hungraðir í fyrsta sigur og klára leikinn 3-2.

HK 3 - 0 Ægir (19:15 í kvöld)
Mínir menn í HK munu standa fyrir sínu og munu vinna Ægi þar sem Tumi mun eiga stórleik með mark og stoðsendingu og vinna þeir 3-0.

Þróttur R. 3 - 3 ÍR (19:15 í kvöld)
RISALEIKUR! Mörkin flæða inn og alvöru barátta. Hann verður mjög jafn og lokaniðurstaða verður 3-3.

Fylkir 3 - 1 Vestri (14:00 á morgun)
Fylkismenn hafa í vetur sýnt hvað í þeim býr og taka Vestfirðinga nokkuð léttilega 3-1.
Slapp
banner
banner
banner
banner