Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson, fyrrum leikmaður KA, skaut vel á Þórsara, nágranna og erkifjendur KA, í hlaðvarpi Hjörvars Hafliðasonar, Dr. Football, í síðustu viku.
Í þættinum var rætt um KA fyrir Pepsi Max-deildina í sumar, en Þórsarar leika í deild fyrir neðan.
Hjörvar spurði Þorvald út í hvað myndi gerast ef þessi tvö félög yrðu sameinuð. „Þá yrði Þór bara lagt niður," sagði Þorvaldur þá. „Þórsarar halda mjög gott herrakvöld og eru fínir í veislum, en þeir eru lélegir í íþróttum."
„Þeir geta séð um veislurnar og við getum séð um íþróttirnar," sagði Þorvaldur.
Sjá einnig:
„Þór og KA verða ekki sameinuð á meðan ég er á lífi"
Strákarnir í Kjarnafæði öskruðu á skýrslu um KA. Áhugaverð skýrsla sem sýnir að maður https://t.co/Nljyzor2nW ekki eftir áhttps://t.co/gxhfLR8FbY
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) May 30, 2020
Athugasemdir