Markvörðurinn Guillermo Ochoa hjá Mexíkó er á leið á sitt sjötta heimsmeistaramót. Hann, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eru einu leikmennirnir sem hafa verið valdir á sex heimsmeistaramót.
Ochoa lék í fyrsta sinn á HM árið 2006 en hann er 40 ára og lék með AEL Limassol á Kýpur á síðasta tímabili. Hann hefur ekki verið aðalmarkvörður Mexíkó síðustu ár.
Ochoa lék í fyrsta sinn á HM árið 2006 en hann er 40 ára og lék með AEL Limassol á Kýpur á síðasta tímabili. Hann hefur ekki verið aðalmarkvörður Mexíkó síðustu ár.
Javier Aguirre landsliðsþjálfari Mexíkó valdi hinn 17 ára gamla Gilberto Mora meðal leikmanna í 26 manna HM hópinn. Hann spilar fyrir Tijuana í mexíkósku deildinni.
Mexíkó er gestgjafi á HM í sumar, ásamt Bandaríkjunum og Kanada. Mexíkó og Suður-Afríka mætast í opnunarleik HM þann 11. júní. Suður-Kórea og Tékkland eru einnig í riðlinum.
Mexíkó HM hópurinn:
Markverðir: Raul Rangel (Guadalajara), Guillermo Ochoa (AEL Limassol), Carlos Acevedo (Santos Laguna).
Varnarmenn: Jorge Sanchez (PAOK), Israel Reyes (Club America), Cesar Montes (Lokomotiv Moskva), Johan Vasquez (Genoa), Jesus Gallardo (Toluca), Mateo Chavez (AZ).
Miðjumenn: Erik Lira (Cruz Azul), Orbelin Pineda (AEK Athens), Alvaro Fidalgo (Real Betis), Roberto Alvarado, Brian Gutierrez, Luis Romo (Guadalajara), Edson Alvarez (West Ham), Obed Vargas (Atletico Madrid), Gilberto Mora (Tijuana), Luis Chavez (Dynamo Moskva).
Sóknarmenn: Cesar Huerta (Anderlecht), Alexis Vega (Toluca), Julian Quinones (Al-Qadsiah), Guillermo Martinez (UNAM), Armando Gonzalez (Guadalajara), Santiago Gimenez (AC Milan), Raul Jimenez (Fulham).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





