Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 16:37
Elvar Geir Magnússon
Tveir í ástralska HM hópnum hafa ekki leikið landsleik
Cristian Volpato.
Cristian Volpato.
Mynd: EPA
Tony Popovic.
Tony Popovic.
Mynd: EPA
Tveir leikmenn sem valdir voru í 26 manna landsliðshóp Ástralíu fyrir HM hafa ekki leikið landsleik fyrir þjóðina.

Það eru Tete Yengi, sóknarmaður Livingston, og kantmaðurinn Cristian Volpato sem lék fyrir yngri landslið Ítalíu en fékk grænt ljós frá FIFA fyrir helgi á að spila fyrir Ástralíu.

Yengi er 25 ára og skoraði sex mörk í 22 leikjum fyrir japanska liðið Machida Zelvia þar sem hann spilaði á lánssamningi.

Volpato, sem er leikmaður Sassuolo, fæddist og ólst upp í Sydney í Ástralíu en fluttist til Ítalíu 2020 og fór í yngri flokka starf Roma.

Hér að neðan má sjá HM hópinn sem landsliðsþjálfari Ástralíu, Tony Popovic, valdi. Liðið er í riðli með Tyrklandi, Bandaríkjunum og Paragvæ í riðli.

Markverðir: Ryan (Levante), Izzo (Randers), Beach (Melbourne City).

Varnarmenn: Behich (Melbourne City), Bos (Feynoord), Burgess (Swansea City), Circati (Parma), Degenek (APOEL), Geria (Albirex Niigata), Herrington (Colorado Rapids), Italiano (Grazer), Souttar (Leicester City), Trewin (New York City).

Miðjumenn: Devlin (Heart of Midlothian), Hrustic (Heracles Almelo), Irvine (St Pauli), Metcalfe (St Pauli), Okon-Englster (Sydney), O'Neill (New York City).

Sóknarmenn: Irankunda (Watford), Leckie (Melbourne City), Mabil (Castellon), Toure (Norwich City), Velupilly (Melbourne City), Volpato (Sassuolo), Yengi (Livingston/Machida Zelvia).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner