Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kraftröðunin fyrir HM: Gæti verið að byrja fyrir England
Sæti 36 til 33
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó spilar á HM í fyrsta sinn í 52 ár.
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó spilar á HM í fyrsta sinn í 52 ár.
Mynd: EPA
Sebastian Desabre, þjálfari Kongó.
Sebastian Desabre, þjálfari Kongó.
Mynd: EPA
Sóknarmaðurinn Cedric Bakambu.
Sóknarmaðurinn Cedric Bakambu.
Mynd: EPA
Ástralía stillir sér upp í liðsmynd.
Ástralía stillir sér upp í liðsmynd.
Mynd: EPA
Tony Popovic, landsliðsþjálfari Ástralíu.
Tony Popovic, landsliðsþjálfari Ástralíu.
Mynd: EPA
Harry Souttar er í vörninni.
Harry Souttar er í vörninni.
Mynd: EPA
Matthew Ryan hér með áströlsku goðsögninni Tim Cahill.
Matthew Ryan hér með áströlsku goðsögninni Tim Cahill.
Mynd: EPA
Bosnía vann Ítalíu í umspilinu fyrir HM.
Bosnía vann Ítalíu í umspilinu fyrir HM.
Mynd: EPA
Sergej Barbarez hafði ekki þjálfað áður en hann tók við landsliði Bosníu.
Sergej Barbarez hafði ekki þjálfað áður en hann tók við landsliði Bosníu.
Mynd: EPA
Edin Dzeko.
Edin Dzeko.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Carlos Queiroz tók við Gana stuttu fyrir HM.
Carlos Queiroz tók við Gana stuttu fyrir HM.
Mynd: EPA
Antoine Semenyo átti frábært tímabil í enska boltanum.
Antoine Semenyo átti frábært tímabil í enska boltanum.
Mynd: EPA
Kudus er meiddur.
Kudus er meiddur.
Mynd: EPA
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.

Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.

Við erum búin að taka fyrir sæti 48 til 37 í fyrri fréttum og núna eru það næstu fjögur lið sem við kynnum til leiks.

36. Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
Eru í 46. sæti á heimslistanum.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó er komið inn á HM í fyrsta sinn í 52 ár, og í fyrsta sinn síðan þjóðin keppti undir nafninu Zaíre árið 1974. Þetta er lið sem þurfti sannarlega að hafa fyrir hlutunum til að komast inn á mótið. Kongómenn enduðu rétt á eftir Senegal í sínum riðli í Afríku, fóru svo í gegnum grimmt umspil gegn Nígeríu sem vannst í vítaspyrnukeppni og tryggðu sér að lokum HM-sætið með 1-0 sigri eftir framlengingu gegn Jamaíku. Sigurmarkið gegn Jamaíku skoraði Axel Tuanzebe, varnarmaður Burnley sem fæddist í Bunia í austurhluta landsins, svæði sem hefur lengi glímt við átök og óstöðugleika. HM-sætið hafði því þýðingu sem fór langt út fyrir fótboltann sjálfan og þjóðin fagnaði innilega þegar sætið var loksins tryggt. Á vellinum eru þó enn ákveðin spurningarmerki. Kongó hefur verið sterkt og vel skipulagt lið en stundum skortir nægilega skerpu fram á við. Það gæti reynst vandamál á móti sterkari þjóðum á HM, þar sem verkefnið byrjar meðal annars með opnunarleik gegn Cristiano Ronaldo og félögum í Portúgal. Samt ber að nefna að þetta er þetta lið sem hefur sýnt karakter og seiglu í gegnum alla undankeppnina og eftir rúmlega hálfrar aldar bið er Kongó líklega ekkert sérstaklega upptekið af því hvað aðrir telja líklegt að gerist næst.

Þjálfarinn: Sébastien Desabre hefur stýrt Kongó síðan 2022 og náð að byggja upp skipulagt og samkeppnishæft lið. Franski þjálfarinn er sannkallaður heimsborgari sem hefur komið víða við í Afríku og Asíu á ferlinum, meðal annars hjá Úganda, Egyptalandi og í Túnis. Undir hans stjórn hefur Kongó náð aftur fótfestu á stóra sviðinu.

Lykilmaður: Cedric Bakambu (Real Betis) er reynslubolti og helsta markavonin fremst á vellinum ásamt Yoane Wissa, framherja Newcastle sem kemur ískaldur inn í mótið. Bakambu hefur skorað reglulega fyrir landsliðið í mörg ár og kemur með reynslu úr franska, spænska, tyrkneska og gríska boltanum. Ef Kongó ætlar að stríða sterkari liðum á HM þarf Bakambu nær örugglega að vera með markaskóna á réttum stað.

Gaman að fylgjast með: Gael Kakuta (AEL) þarf vart að kynna fyrir gömlum Football Manager-spilurum. Fyrrum undrabarnið úr akademíu Chelsea hefur átt langan og óvenjulegan feril, spilað víða um Evrópu og er í dag leikmaður AEL í Grikklandi. Hann er öflugur tæknilega og er einn skemmtilegasti leikmaður Kongó. Nú, mörgum árum eftir að hafa verið leikmaður sem þú þurftir að kaupa í FM, þá mætir hann á HM með þjóð sinni.

Leikir á HM: Portúgal í Houston (17. júní); Kólumbía í Guadalajara (23. júní); Úsbekistan í Atlanta (27. júní).

35. Ástralía
Eru í 27. sæti á heimslistanum.

Ástralía er fastagestur á HM en undankeppnin fyrir 2026 var meira taugatrekkjandi en margir hefðu viljað. 'Socceroos' gerðu of mörg jafntefli á leiðinni, þó sigur gegn Japan hafi minnt á að liðið getur vel staðið upp í hárinu á sterkum andstæðingum. Undir stjórn Tony Popovic heldur Ástralía áfram að byggja á sínum styrk sem er öguð liðsheild, vinnusemi og ákveðnu undirmagna hugarfari sem hefur oft hentað þeim vel á stórmótum. Þetta er kannski ekki lið fullt af stórstjörnum - það er enginn Tim Cahill í þessu liði - en Ástralir hafa áður sýnt að þeir kunna vel að vera liðið sem gerir öðrum lífið erfitt. Undirbúningurinn fyrir HM fór hægt af stað með daufri frammistöðu gegn Kamerún, en endaði mun betur þegar Ástralía rúllaði yfir Curacao 5-1. Þar stal Nestory Irankunda senunni með tveimur mörkum, Michael Jackson fagni og loforði um að næsta kynslóð gæti verið ansi spennandi. Riðill með Bandaríkjunum, Tyrklandi og Paragvæ býður upp á raunhæft tækifæri fyrir Ástrala til að stríða andstæðingum sínum og þó fáir séu að setja þá meðal líklegra liða til að fara langt væri ekki ólíkt Ástralíu að verða óþægilegur skemmdarvargur á mótinu.

Þjálfarinn: Tony Popovic tók við Ástralíu eftir HM 2022 og hefur komið sínu handbragði á liðið. Hann spilaði yfir 50 A-landsleiki fyrir Ástralíu og hefur byggt upp sterkt orðspor sem þjálfari í heimalandinu, meðal annars með Western Sydney Wanderers sem hann gerði að Asíumeisturum árið 2014. Popovic er þekktur fyrir agað og skipulagt liðsskipulag, eiginleikar sem gætu reynst dýrmætir þegar komið er inn á HM.

Lykilmaður: Matthew Ryan (Levante) er leiðtoginn og öryggisnetið aftast á vellinum. Markvörðurinn, sem hefur varið mark Ástralíu í rúman áratug, er reynslumesti leikmaður hópsins og hefur leikið í sterkum deildum Evrópu með félögum á borð við Arsenal, Brighton, AZ og Real Sociedad. Ef Ástralía ætlar að gera eitthvað á HM verður Ryan líklega að eiga nokkrar stórar vörslur.

Gaman að fylgjast með: Mohamed Touré (Norwich) er klárlega eitt af áhugaverðari nöfnunum hjá Áströlum í sumar. Framherjinn, sem kemur úr akademíu Adelaide United og hefur verið að þróast í Evrópuboltanum, er kraftmikill, hraður og óhræddur við að taka varnarmenn á. Þó Nestory Irankunda taki oft fyrirsagnirnar er Touré einn af þeim ungu leikmönnum sem gæti sprungið út á stærsta sviðinu eftir að hafa raðað inn mörkum með Norwich á tímabilinu.

Leikir á HM: Tyrkland í Vancouver (13. júní); Bandaríkin í Seattle (19. júní); Paragvæ í San Francisco (25. júní).

34. Bosnía og Hersegóvína
Eru í 65. sæti á heimslistanum.

Bosnía og Hersegóvína fór líklega flóknustu, en jafnframt sætustu leiðina á HM. Bosníumenn voru aðeins 13 mínútum frá því að tryggja sér beint sæti á mótið áður en dramatískt jöfnunarmark Austurríkis sendi þá í umspil. Þar tók við sannkölluð rússíbanareið. Fyrst lagði liðið Wales í Cardiff eftir dramatíska vítaspyrnukeppni og síðan kom stærsta augnablikið: Sigur á Ítalíu sem tryggði Bosníu HM-sæti og sá til þess að Ítalía yrði ekki með á mótinu í þriðja sinn í röð. Undir stjórn Sergej Barbarez hefur liðið tekið miklum breytingum. Fyrrum landsliðshetjan tók við sínu fyrsta þjálfarastarfi árið 2024, yngdi upp hópinn verulega og blandaði reynslu og ungum ferskleika saman. Útkoman er lið sem virðist spila með meiri gleði, meiri trú og meira hugrekki en Bosnía hefur sýnt um nokkurt skeið inn á fótboltavellinum. Það er þó ekki eins og reynslan sé horfin. Edin Dzeko er enn og aftur mættur í fremstu víglínu fertugur að aldri og mun leiða sitt land inn á stórmót. Riðill með Kanada og Sviss verður ekkert einfalt verkefni, en þetta bosníska lið kemur inn á HM með sjálfstraustið í lagi eftir að hafa lifað af tvær dramatískar umspilsorrustur.

Þjálfarinn: Sergej Barbarez er goðsögn í bosnískum fótbolta en tók ekki við sínu fyrsta þjálfarastarfi fyrr en árið 2024, þá 52 ára gamall, þegar hann tók við bosníska landsliðinu. Fyrrum framherjinn, sem margir muna eftir úr þýska boltanum með Hamburg og Bayer Leverkusen, kom inn með ferska nálgun, treysti ungum leikmönnum og náði á ótrúlega skömmum tíma að leiða Bosníu aftur á HM. Hann náði að róa öldurnar sem höfðu verið í kringum landslið Bosníu árin áður.

Lykilmaður:
Gaman að fylgjast með: Kerim Alajbegovic (Red Bull Salzburg) er klárlega leikmaður til að fylgjast með á þessu móti. Kantmaðurinn knái er aðeins 18 ára gamall og hann skoraði úr sigurvítinu í vítaspyrnukeppninni gegn Wales í umspilinu. Hugrekki, tækni og sjálfstraust virðist ekki vanta hjá þessum hæfileikaríka leikmanni sem nýja kynslóðin af Football Manager spilurum kannast vel við.

Leikir á HM: Kanada í Toronto (12. júní); Sviss í Los Angeles (18. júní); Katar í Seattle (24. júní).

33. Gana
Eru í 74. sæti á heimslistanum.

Það er erfitt að hugsa um Gana á HM án þess að rifja upp sumarið 2010. Black Stars voru þá aðeins sekúndum frá því að verða fyrsta afríska þjóðin til að komast í undanúrslit heimsmeistaramóts áður en vítaspyrnukeppni gegn Úrúgvæ batt endi á það. Luis Suarez varði boltann á marklínunni og fagnaði svo eins og óður maður þegar Asamoah Gyan, ein mesta költhetja í sögu HM, klikkaði á vítapunktinum. HM 2026-liðið virðist þó vera á allt öðrum stað. Gana fer inn í mótið með ungan og tiltölulega óreyndan hóp sem margir telja frekar verkefni til framtíðar en lið sem er tilbúið að gera stórar rósir strax. Undirbúningurinn hefur verið óstöðugur en Otto Addo missti starfið skömmu fyrir mót og breytingar urðu á hliðarlínunni tveimur mánuðum fyrir mót. Það vantar þó ekki hæfileikana. Gana á enn leikmenn sem geta skapað vandamál fyrir hvaða lið sem er og þegar sjálfstraustið er til staðar getur þetta verið mjög skemmtilegt landslið. Stóra áfallið er hins vegar það að Mohammed Kudus verður ekki með vegna meiðsla, sem tekur mikið bit úr sóknarleik liðsins. Gana virðist kannski langt frá kraftmikla liðinu frá 2010, en það hefur áður sýnt að þegar stemningin og krafturinn myndast getur það farið lengra en margir búast við.

Þjálfarinn: Carlos Queiroz er nafn sem margir kannast við. Portúgalinn hefur átt litríkan þjálfaraferil, verið aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og stýrt meðal annars Portúgal, Íran, Kólumbíu og Egyptalandi í landsliðsfótboltanum. Nú fær hann það verkefni að reyna að koma meiri stöðugleika á Gana-lið sem hefur sveiflast mikið undanfarin ár.

Lykilmaður: Antoine Semenyo (Man City) sýndi það í vetur að hann er einn öflugasti framherji heims í dag. Með Mohammed Kudus frá vegna meiðsla falla enn meiri væntingar á Semenyo. Framherjinn er kraftmikill, beinskeyttur og getur bæði skorað og búið til færi fyrir liðsfélaga sína. Semenyo hefur þróast í mikilvægasta sóknarmann Gana og verður líklega maðurinn sem 'Black Stars' horfa helst til þegar þarf að búa til eitthvað fram á við. Semenyo hefði líka getað spila við enska landsliðið - hann er fæddur í London - og væri mögulega að fara að byrja fyrir þeirra lið í sumar þar sem hann hefur tekið stór skref fram á við, en Gana fær að njóta krafta hans í sumar.

Gaman að fylgjast með: Caleb Yirenkyi (Nordsjælland) gæti orðið eitt af nöfnunum sem fleiri kynnast á HM í sumar. Hann kemur úr hinni frægu Right to Dream akademíu danska félagsins Nordsjælland en núna er hann orðaður við stærri félög í Evrópu. Ungi miðjumaðurinn er einn efnilegasti leikmaður Ganverja og er leikmaður sem þjóðin bindur miklar vonir við næstu árin. HM 2026 gæti orðið fyrsti stóri sýningarglugginn hans.

Leikir á HM: Panama í Toronto (17. júní); England í Boston (23. júní); Króatía í Philadelphia (27. júní).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner