Fotbolti.net
01.07.20 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson

England: Gylfi skoraði í sigri Everton gegn Leicester

Arsenal og Newcastle skoruðu fjögur

England: Gylfi skoraði í sigri Everton gegn Leicester
Canon

Mynd: Getty Images

Þremur leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni í þessu og skoraði Gylfi Þór Sigurðsson sigurmark Everton gegn Leicester City.
Richarlison kom heimamönnum yfir snemma leiks eftir lága fyrirgjöf frá ungstirninu Anthony Gordon. Sex mínútum síðar tvöfaldaði Gylfi Þór forystuna með marki úr vítaspyrnu. Gylfi sendi markvörðinn í rangt horn og skoraði auðveldlega.

Everton verðskuldaði forystuna í leikhlé en gestirnir mættu ákveðnari út í seinni hálfleikinn og minnkaði Kelechi Iheanacho muninn á 51. mínútu.

Leicester komst nálægt því að jafna leikinn en færin fóru ýmist framhjá eða yfir markið og átti Jordan Pickford eina frábæra vörslu.

Leicester er áfram í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar en það sæti er í hættu eftir Covid pásu. Leicester er aðeins búið að næla sér í tvö stig úr fyrstu þremur leikjum eftir pásu. Everton er aftur á móti að hífa sig upp töfluna og komið með sjö stig úr síðustu þremur leikjum.

Everton 2 - 1 Leicester City
1-0 Richarlison ('10 )
2-0 Gylfi Sigurdsson ('16 , víti)
2-1 Kelechi Iheanacho ('51 )

Arsenal og Newcastle rúlluðu þá yfir Norwich og Bournemouth í hinum tveimur leikjum dagsins.

Pierre-Emerick Aubameyang skoraði tvennu og lagði eitt upp í auðveldum sigri Arsenal á heimavelli gegn Norwich.

Granit Xhaka og Cedric Soares komust einnig á blað í einföldum sigri. Arsenal er komið upp í sjöunda sæti, sex stigum frá Evrópusæti. Norwich er áfram á botninum.

Lærisveinar Steve Bruce skoruðu fjögur mörk á útivelli gegn Bournemouth. Allan Saint-Maximin lagði þrjú þeirra upp.

Newcastle er um miðja deild, fjórum stigum eftir Arsenal. Bournemouth er aftur á móti í harðri fallbaráttu og þarf Eddie Howe að snúa gengi liðsins við hið snarasta.

Arsenal 4 - 0 Norwich
1-0 Pierre Emerick Aubameyang ('33 )
2-0 Granit Xhaka ('37 )
3-0 Pierre Emerick Aubameyang ('67 )
4-0 Cedric ('81 )

Bournemouth 1 - 4 Newcastle
0-1 Dwight Gayle ('5 )
0-2 Sean Longstaff ('30 )
0-3 Miguel Almiron ('57 )
0-4 Valentino Lazaro ('77 )
1-4 Dan Gosling ('93)
England: Gylfi skoraði í sigri Everton gegn Leicester
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.