Fotbolti.net
01.07.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Framlengt hjá Belgíu og Senegal

Senegal var sterkara liðið stærsta hluta leiksins.

Senegal var sterkara liðið stærsta hluta leiksins.

Canon

Mynd: EPA

Belgía 2 - 2 Senegal
0-1 Habib Diarra ('25 )
0-2 Ismaila Sarr ('51 )
1-2 Romelu Lukaku ('86 )
2-2 Youri Tielemans ('89 )
Belgía og Senegal eru að eigast við í gríðarlega skemmtilegum fótboltaleik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.

Senegal var sterkara liðið stærsta hluta leiksins og leiddi með tveggja marka mun þar til á lokamínútunum. Habib Diarra skoraði í fyrri hálfleik áður en Ismaïla Sarr gerði frábært mark í upphafi síðari hálfleiks. Senegalar voru óheppnir að leiða ekki stærra.

Rudi García landsliðsþjálfari Belgíu tók Charles De Ketelaere, Kevin De Bruyne og Jérémy Doku af velli snemma í síðari hálfleik til að setja Romelu Lukaku, Dodi Lukebakio og Nicolas Raskin inn.

Þær skiptingar voru gagnrýndar af fótboltasérfræðingum en skiluðu sér á lokamínútunum. Spilamennska liðsins batnaði og minnkaði Lukaku muninn á 86. mínútu áður en Youri Tielemans jafnaði með skalla á 89. mínútu.

Belgum tókst því að jafna metin á þriggja mínútna kafla á lokamínútunum og knýja leikinn í framlengingu.

Sigurvegarinn mætir Bandaríkjunum eða Bosníu í 16-liða úrslitum.
Hinn þaulreyndi Romelu Lukaku kom inn af bekknum í hálfleik og minnkaði muninn á 86. mínútu.

Hinn þaulreyndi Romelu Lukaku kom inn af bekknum í hálfleik og minnkaði muninn á 86. mínútu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.