Brighton að landa Vuskovic

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sky Sports segir að Brighton sé búið að ná samkomulagi við Tottenham um kaup á Luka Vuskovic.
Vuskovic er 19 ára varnarmaður sem stóð sig mjög vel á láni með HSV í Þýskalandi í vetur. Hann er nú staddur á HM með króatíska landsliðinu.

Brighton hefur lagt mikið kapp á að landa Vuskovic í sumar og er nú að ná samkomulag um kaup á leikmanninum. Verðmiðinn er sagður vera um 50 milljónir punda. Brighton greiðir um 46 milljónir punda og möguleiki er á 4 milljóna punda hækkun út frá árangri.
Tottenham er þá sagt fá 20% af næstu sölu leikmannsins og loforð um að geta jafnað tilboð annars staðar frá ef Brighton samþykkir tilboð í leikmanninn í framtíðinni. Fyrr í sumar keypti Tottenham varnarmanninn Jean Paul van Hecke af Brighton fyrir um 52 milljónir punda.
Tottenham keypti hann frá Hajduk Split í heimalandinu í september árið 2023, hann gekk svo formlega í raðir félagsins tæpum tveimur árum seinna, spilaði á undirbúningstímabilinu en var svo lánaður til HSV. Tottenham greiddi um 12 milljónir punda fyrir kappann.