Fotbolti.net
01.07.26 - 20:49
Ívan Guðjón Baldursson

Klopp skoðar að taka við þýska landsliðinu

Klopp skoðar að taka við þýska landsliðinu
Canon

Mynd: EPA

Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem greina frá því að þýska goðsögnin Jürgen Klopp hafi áhuga á landsliðsþjálfarastarfinu hjá Þýskalandi.
Tekur Klopp við af Nagelsmann? - „Skil að nafn mitt hafi verið nefnt“
TENGT EFNI

Tekur Klopp við af Nagelsmann? - „Skil að nafn mitt hafi verið nefnt“

Julian Nagelsmann gæti verið rekinn eftir slæma frammistöðu þýska landsliðsins á heimsmeistaramótinu. Þjóðverjar duttu úr leik eftir vítaspyrnukeppni gegn Paragvæ, eftir að hafa verið ósannfærandi í riðlakeppninni. Þeir voru heppnir að leggja Fílabeinsströndina að velli og töpuðu svo lokaumferðinni með varaliðið inná gegn Ekvador.

Klopp er sterklega orðaður við að taka við sem arftaki Nagelsmann, en Klopp starfar þessa stundina sem yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni eftir að hafa náð frábærum árangri sem þjálfari hjá Mainz, Borussia Dortmund og Liverpool.

„Ég er ekki enn farinn að hugsa út í það. Ég skil að nafn mitt hafi verið nefnt en þetta er ekki rétti tíminn til að ræða það,“ sagði Klopp á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.