Fotbolti.net
01.07.26 - 18:49
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Belgíu og Senegal: Þrjár breytingar þrátt fyrir stórsigur

Byrjunarlið Belgíu og Senegal: Þrjár breytingar þrátt fyrir stórsigur
Canon

Mynd: EPA

Belgía og Senegal eigast við í gríðarlega spennandi viðureign í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Bæði lið skoruðu fimm mörk í síðustu umferð riðlakeppninnar og má búast við hörkuslag. Belgar mæta til leiks með sama byrjunarlið og rúllaði yfir Nýja-Sjáland á meðan Senegalar gera þrjár breytingar frá stórsigri gegn Írak.

Pape Gueye, Iliman Ndiaye og Pathe Ciss koma inn í byrjunarliðið fyrir Lamine Camara, Ibrahim Mbaye og Abdoulaye Seck.

Það ríkir mikil spenna fyrir slaginn en sigurvegari kvöldsins mætir annað hvort Bandaríkjunum eða Bosníu í næstu umferð, 16-liða úrslitunum.

Belgía: Courtois, Castagne, Theate, Mechele, De Cuyper, Tielemans, Vanaken, De Bruyne, Trossard, Doku, De Ketelaere
Varamenn: De Winter, Fernandez-Pardo, Lammens, Lukaku, Lukebakio, Meunier, Moreira, Ngoy, Onana, Penders, Raskin, Saelemaekers, Seys, Witsel

Senegal: Diaw, Diatta, Ciss, Niakhate, Jakobs, I.Gueye, P.Gueye, Diarra, I.Ndiaye, Mane, I.Sarr
Varamenn: Camara, Diao, Deng, M. Diouf, Y. Diouf, Jackson, Koulibaly, Mbaye, Mendy, C.Ndiaye, B.Ndiaye, M.Sarr, P.Sarr, Seck
Byrjunarlið Belgíu og Senegal: Þrjár breytingar þrátt fyrir stórsigur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.