Fotbolti.net
30.06.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

Tekur Klopp við af Nagelsmann? - „Skil að nafn mitt hafi verið nefnt“

Tekur Klopp við af Nagelsmann? - „Skil að nafn mitt hafi verið nefnt“
Canon

Mynd: EPA

Jürgen Klopp er talinn líklegastur til þess að taka við þýska landsliðinu eftir að þeir töpuðu fyrir Paragvæ í 32-liða úrslitum HM í gær.
Nagelsmann ætlar ekki að hætta
TENGT EFNI

Nagelsmann ætlar ekki að hætta

Þjóðverjar áttu afar slaka frammistöðu gegn Paragvæ og féllu úr leik eftir vítaspyrnukeppni.

Búist er við því að Julian Nagelsmann verði látinn taka pokann sinn á næstu dögum. Hann hefur sjálfur sagt að hann vilji halda áfram, en samningur hans gildir út EM 2028.

Klopp hefur lengi verið orðaður við starfið og er talinn líklegastur til að taka við ef Nagelsmann verður rekinn. Fyrrum stjóri Liverpool vildi þó lítið tjá sig um það á MagentaTV eftir leikinn í gær.

„Ég er ekki enn farinn að hugsa út í það. Ég skil að nafn mitt hafi verið nefnt en þetta er ekki rétti tíminn til að ræða það,“ sagði Klopp.

Þjóðverjar hafa valdið miklum vonbrigðum á síðustu þremur heimsmeistaramótum, eða allt frá því þeir unnu keppnina árið 2014. Draumur Klopp hefur alltaf verið að þjálfa þýska landsliðið og nú gæti tækifærið loksins gefist.

Hann stýrði síðast Liverpool frá 2015 til 2024 en áður þjálfaði hann Borussia Dortmund og Mainz.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.