PSG vann Franska Ofurbikarinn í gær eftir 4-0 sigur á Nantes en leikurinn fór fram í Ísrael annað árið í röð.
Neymar skoraði tvö mörk en Messi og Sergio Ramos skorðuðu sitt markið hvor.
Það var létt yfir mönnum í leikslok og einhvernvegin fór það þannig að Neymar sá um verðlaunaafhendinguna og setti gullmedalíurnar utan um háls leikmanna liðsins.
PSG hefur leik í frönsku deildinni á laugardaginn þegar liðið heimsækir Clermont Foot.
Neymar is handing out the medals 😭 pic.twitter.com/574Hfx9Fwj
— Janty (@CFC_Janty) July 31, 2022
Athugasemdir