Fotbolti.net
11.09.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Styttist í framkvæmdir í Mosó

Styttist í framkvæmdir í Mosó
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Búið er að skipa rýnihóp, skipaðan fulltrúum Mosfellsbæjar og Aftureldingar, til að vinna þarfagreiningu vegna fyrirhugaðrar stúkubyggingar við nýja aðalvöllinn að Varmá.

Nýi völlurinn verður á efri vellinum, gamla Varmárvelli. Búið er að leggja gervigras á völlinn og öflug flóðljós. Við völlinn var hlaupabraut en hún hefur verið færð.

Við völlinn á að rísa glæsilega stúkubygging. Markmið vinnunnar er að greina þarfir fyrir stúkubygginguna, móta helstu forsendur fyrir hönnun hennar og leggja mat á stofn- og rekstrarkostnað.
Meðal þess sem undirbúningshópurinn mun skoða er:
- fjöldi áhorfendasæta og stærð byggingar
- aðgengi og aðstaða fyrir áhorfendur
- fjöldi og fyrirkomulag búningsklefa
- aðstaða vegna keppnishalds og kröfur KSÍ
- möguleg áfangaskipting framkvæmdarinnar
- stofn- og rekstrarkostnaður
- möguleikar á samnýtingu húsnæðis

Ekki er þak á stúkunni við völlinn sem Afturelding spilar á í dag. Í lok síðasta mánaðar var sett áhorfendamet í Mosfellsbæ þegar 1257 áhorfendur mættu á leik hjá karlaliðinu er liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næsta ári. 700 sæti eru við núverandi völl og ljóst að það þarf að fjölga sætum fyrir áhorfendur. Næsta verkefni hjá liðinu er bikarúrslitaleikurinn sem fram fer á Laugardalsvelli annað kvöld.

Afturelding mun færa sig á nýja völlinn þegar stúkubyggingin verður tilbúin.

Heimild: Mos.is

Af gamla Varmárvelli.

Af gamla Varmárvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svona er stúkan við aðalvöllinn í dag.

Svona er stúkan við aðalvöllinn í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.