Fotbolti.net
11.09.26 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fótboltahátíð á Selfossi og Jón Daði heiðraður

Fótboltahátíð á Selfossi og Jón Daði heiðraður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Á morgun tekur Selfoss á móti KFG á JÁVERK-vellinum í lokaumferð 2. deildar og geta Selfyssingar með stigi eða stigum tryggt sér sæti í Lengjudeildinni að ári.

Selfyssingar ætla að vera með fótboltahátíð á morgun og hvetja alla til að mæta. Leikurinn sjálfur hefst klukkan 14:00 en dagskráin hefst kl. 12:45 á vellinum.

Viðburðurinn á Facebook

Huppu-ísbíllinn mætir á svæðið og boðið verður upp á knattþrautir fyrir börnin. Þá ætlar Domino’s að bjóða yngri kynslóðinni upp á pizzur. Óli Stefán, þjálfari Selfyssinga, fer yfir liðið og leikskipulagið í Tíbrá áður en Jón Daði Böðvarsson verður heiðraður rétt fyrir leik á JÁVERK-vellinum.
Lokaumferð 2. deildar á laugardag - Selfossi dugir jafntefli
TENGT EFNI

Lokaumferð 2. deildar á laugardag - Selfossi dugir jafntefli

Á sama tíma og Selfoss þarf á stigi að halda til að tryggja sér sæti í næstefstu deild er KFG í harðri baráttu við Þrótt Vogum um að falla ekki úr deildinni. KFG er með tveggja stiga forskot á Þróttara fyrir lokaumferðina en ljóst að jafntefli mun ekki duga Garðbæingum ef Þróttur sigrar Magnamenn á heimavelli.


Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar21+2747
2Selfoss21+1842
3Kári21+2339
4KFA21+1029
5Dalvík/Reynir21-328
6Víkingur Ó.21-1228
7Kormákur/Hvöt21+527
8Fjölnir21+227
9Magni21-1825
10KFG21-1922
11Þróttur V.21-1020
12Hvíti riddarinn21-2317
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.