01.08.26 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson
Real Madrid tókst ekki að leggja Albert og félaga

Albert Guðmundsson spilaði 70 mínútur gegn Real Madrid

Mynd: Fiorentina

Stefán Teitur var með bandið hjá Hannover

Mynd: Hannover 96

Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina sem gerði 2-2 jafntefli við Jose Mourinho og lærisveina hans í Real Madrid í Austurríki í dag.
Mourinho stýrði sínum öðrum æfingaleik eftir að hann sneri aftur í brúna hjá Real Madrid.
Brasilíumaðurinn Endrick og hinn 18 ára gamli Alexis Ciria komu Madrídingum í 2-0 á fyrstu 25 mínútunum. Fiorentina gafst þó ekki upp og jafnaði með mörkum frá Roberto Piccoli og Moise Kean.
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina og lék í 70 mínútur. Flórensarliðið á tvo æfingaleiki eftir áður en ítalska deildin hefst.
Brynjólfur Andersen Willumsson var í byrjunarliði Groningen sem vann Real Valladolid, 1-0.
AGF og Lyngby skildu jöfn, 1-1, í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni. Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson byrjuðu hjá Lyngby en Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði AGF.
Daníel Freyr Kristjánsson kom inn af bekknum hjá Lyngby en Tómas Óli Kristjánsson var ónotaður varamaður hjá AGF.
AGF er í fjórða sæti með tvö stig en Lyngby í því tíunda með eitt stig eftir tvær umferðir.
Ísak Andri Sigurgeirsson kom inn af bekknum hjá Norrköping sem vann sannfærandi 2-0 sigur á Helsingborg í sænsku B-deildinni. Norrköping er á toppnum með 35 stig eftir sautján umferðir.
Davíð Kristján Ólafsson var í byrjunarliði Polonia Warszawa sem vann Skierniewice, 3-1, í pólsku B-deildinni. Polonia er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.
Lúkas Petersson og félagar í Hoffenheim unnu Karlsruher, 3-0, í æfingaleik þar sem leiknar voru tvær 60 mínútna hálfleikir. Lúkas byrjaði á bekknum.
Stefán Teitur Þórðarson bar fyrirliðabandið í 3-0 sigri Hannover á PEC Zwolle í æfingaleik. Skagamaðurinn er orðinn gríðarlega mikilvægur hjá Hannover sem var nálægt því að komast upp um deild á síðasta tímabili.
Patrik Sigurður Gunnarsson stóð í marki Kortrijk sem tapaði 2-1 fyrir franska félaginu Reims.
Benoný Breki Andrésson kom inn af bekknum hjá Stockport County í 1-0 sigri á Preston. Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille sem vann Leuven í níu marka leik, 6-3.
Þórir Jóhann Helgason var síðan í byrjunarliði Venezia sem tapaði 4-3 fyrir St. Etienne.