Fotbolti.net
01.08.26 - 06:00
Kári Snorrason

Robert sigurvegari HM tippleiks Núnú og Fótbolta.net

Robert er mikill stuðningsmaður Arsenal.

Robert er mikill stuðningsmaður Arsenal.

Canon

Mynd: Aðsend

Robert Plazej er sigurvegari HM leiks Fótbolta.net og Núnú og fékk hann að launum 100.000 krónur í verðlaun frá Núnú.

„Ég er mjög ánægður með þetta,“ segir Robert í samtali við Fótbolta.net.

Þótt svo að hann hafi tippað á sigur Spánar hélt hann mikið með Englendingum á mótinu.

Hann segist þó ekki vera sérlega laginn við að spá fyrir um úrslit þrátt fyrir að sýna gífurlega spásnilli í tippleiknum.

„Þegar á botninn er hvolft er þetta bara heppni. En ég horfi mikið á fótbolta og sá mína menn í Arsenal lyfta Englandsmeistaratitlinum í vor,“ segir Robert en hérlendis er hann mikill Skagamaður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.