Badu: Við gerðum okkur of erfitt fyrir í fyrri leiknum

Daniel Badu þjálfari Vestra og fyrrverandi leikmaður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daniel Badu þjálfari Vestra og fyrrverandi leikmaður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vestri tóku á móti RFS í forkeppni Sambandsdeildarinnar fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 1-1 og einvígið 2-5 samtals. Það þýðir að Evrópuævintýri Vestra er á enda í ár.
Fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leikinn.
„Það er svekkjandi að detta úr leik en ég held að við gerðum okkur of erfitt fyrir í fyrri leiknum í Riga". Sagði Daniel Badu eftir leik.
Hvernig fannst þér frammistaða liðsins í dag?
,,Frammistaðan var betri en í síðasta leik, við hefðum getað gert betur sóknarlega, en grunnvinnan var góð. Það sem vantaði upp á sóknarlega var að skipta boltanum betur á milli kantana og nýta plássið þar. Stundum vorum við með boltann of lengi og fundum ekki svæðið sem við viljum finna í okkar uppspili".
Evrópuævintýrið er á enda ef tvö einvígi gegn Qarabag og RFS, en hvað er hægt að taka gott úr þessum leikjum?
„Það er mikið sem er hægt að taka, við fengum að spila á því stigi sem okkur langar að vera á, við erum ekki tilbúnir í það núna en ég, leikmenn og stjórnin erum búinn að læra mikið. Vonandi kemur tækifærið aftur og þegar það kemur viljum við vera tilbúnir".
Næsti leikur Vestra er núna strax á mánudaginn næsta gegn Gróttu, Vestri hafa átt erfitt uppdráttar í leikjum sínum eftir Evrópuleikjunum. Hvað viltu sjá hjá liðinu í leiknum gegn Gróttu?
„Leikurinn á mánudaginn er mjög mikilvægur, það er stutt á milli en það er engin afsökun. Við þurfum að mæta til leiks og við megum ekki hugsa um síðustu leiki og það sem við gerðum í þeim. Við þurfum einfaldlega að mæta til leiks og vera tilbúnir".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.
