31.07.26 - 20:39
Ívan Guðjón Baldursson
Stórsigur hjá Hammarby - Hlín og Sædís í byrjunarliðum

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend

Þær voru nokkrar atvinnukonurnar frá Íslandi sem tóku þátt í leikjum dagsins í Evrópu.
Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Hammarby sem rúllaði yfir Växjö í efstu deild sænska boltans. Staðan var 3-0 í leikhlé þegar Guðrúnu var skipt af velli.
Hammarby er með 34 stig eftir 13 umferðir og er í harðri titilbaráttu við BK Häcken, en liðin mættust í úrslitaleik Evrópubikarsins fyrr á árinu og eru tvö langbestu lið sænska boltans um þessar mundir.
Malmö er í þriðja sæti og var Hlín Eiríksdóttir í byrjunarliðinu í markalausu jafntefli gegn Piteå í dag.
Að lokum var Sædís Rún Heiðarsdóttir í byrjunarliði FC Köln sem lagði Grasshopper frá Sviss að velli í æfingaleik. Sandra María Jessen byrjaði ekki inná.
Hammarby 5 - 0 Vaxjö
Malmö 0 - 0 Pitea
Köln 2 - 1 Grasshopper