31.07.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nóel og félagar byrja vel - Annað jafntefli hjá AB

Mynd: Álaborg

Mynd: Aðsend

Mynd: Instagram/orrioskarsson

Mynd: Álaborg
Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu og var hart barist í næstefstu deild í Danmörku.
Nóel Atli Arnórsson lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Álaborg sem lagði Aarhus Fremad á útivelli og var Ólafur Dan Hjaltason ónotaður varamaður í liði heimamanna.
Álaborg er með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á nýju tímabili og skilur Aarhus eftir með þrjú stig. AB gerði þá jafntefli við Fredericia þar sem Adam Ingi Benediktsson var á sínum stað á milli stanga AB.
AB eru nýliðar í deildinni og eiga tvö stig eftir tvær umferðir. Fannar Berg Gunnólfsson er aðalþjálfari liðsins.
HamKam hafði svo betur á útivelli gegn Vålerenga í efstu deild norska boltans en Viðar Ari Jónsson var ónotaður varamaður.
HamKam fór létt með heimamenn og urðu lokatölur 0-3, en Kolbeinn Birgir Finnsson var ekki með heimamönnum vegna leikbanns.
Liðin eru á svipuðum slóðum um miðja deild, fjórum stigum frá Evrópusæti.
Orri Steinn Óskarsson kom inn af bekknum og tókst ekki að koma í veg fyrir 2-1 tap Real Sociedad í æfingaleik gegn Toulouse.
Ísak Bergmann Jóhannesson byrjaði þá á bekknum er Köln gerði 2-2 jafntefli við Hertha Berlin í Íslendingaslag, þar sem Jón Dagur Þorsteinsson byrjaði á bekknum hjá Hertha.
Brynjar Ingi Bjarnason byrjaði á bekknum hjá Greuther Fürth sem lagði Freiburg að velli með þremur mörkum gegn engu og var hóf Willum Þór Willumsson leikinn á bekknum í naumu tapi hjá NEC Nijmegen gegn Sevilla. Bróðir hans Brynjólfur Andersen Willumsson var ekki í byrjunarliði Groningen sem tapaði fyrir Almere City.
Aarhus Fremad 1 - 2 Aalborg
AB 1 - 1 Fredericia
Valerenga 0 - 3 HamKam
Toulouse 2 - 1 Real Sociedad
Köln 2 - 2 Hertha Berlin
Freiburg 0 - 3 Greuther Furth
NEC Nijmegen 1 - 2 Sevilla
Groningen 1 - 3 Almere City
Dusseldorf 2 - 3 Hannover
Kortrijk 1 - 0 Gent U23