Fotbolti.net
31.07.26 - 22:36
Ívan Guðjón Baldursson
Spænski boltinn

Flick: Munum sakna Rashford

Flick: Munum sakna Rashford
Canon

Mynd: EPA

Hansi Flick þjálfari Barcelona segir að Spánarmeistararnir muni sakna Marcus Rashford eftir að hann fór aftur til Manchester United í sumar.
Klásúla í samningi Rashford er runnin út
TENGT EFNI

Klásúla í samningi Rashford er runnin út

Rashford gerði flotta hluti á láni hjá Barcelona á síðustu leiktíð, en Börsungar vildu þrátt fyrir það ekki kaupa hann fyrir 30 milljónir evra.

28 ára Rashford skoraði 14 mörk og gaf 14 stoðsendingar í 49 leikjum með Barca á síðustu leiktíð. Spánarmeistararnir ákváðu að kaupa frekar kantmennina Anthony Gordon úr röðum Newcastle og Karim Adeyemi frá Borussia Dortmund í sumarglugganum.

„Það sem ég get sagt um Marcus er að ég naut þess að vinna með honum. Það var ekki auðvelt að láta félagaskiptin ganga upp en hann er frábær fótboltamaður og stórkostleg manneskja. Ég sakna hans og ég held að liðið sakni hans, en svona er lífið," sagði Flick eftir að Börsungar töpuðu æfingaleik gegn Birmingham eftir vítaspyrnukeppni.

Birmingham hafði betur gegn Barcelona
TENGT EFNI

Birmingham hafði betur gegn Barcelona

Flick: Munum sakna Rashford
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.