Fotbolti.net
01.08.26 - 01:05
Ívan Guðjón Baldursson

FIFA hættir við áformin eftir hávær mótmæli

FIFA hættir við áformin eftir hávær mótmæli
Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino, forseti FIFA, er búinn að staðfesta að það verður ekkert úr áformum Alþjóðafótboltasambandsins um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA.
Leikur allt á reiðiskjálfi og Evrópa gæti sniðgengið HM
TENGT EFNI

Leikur allt á reiðiskjálfi og Evrópa gæti sniðgengið HM

Infantino lofaði aðildarsamböndum stórauknum tekjum ef þau myndu samþykkja að hleypa fjárfestum að, en fékk afar hörð viðbrögð úr öllum heimshornum. Hann segir að það verði ekkert úr þessum áformum vegna einróma viðbragða fótboltaheimsins.

Evrópska fótboltasambandið, UEFA, kaus á fimmtudaginn að sniðganga heimsmeistaramótið ef FIFA myndi halda áfram með áform sín um að hleypa fjárfestum að og sagði yfirráðgjafi Infantino starfi sínu lausu í mótmælaskyni.

CONCACAF, fótboltasambandið í Norður-Ameríku, hafnaði þessari hugmynd sem og asíska fótboltasambandið, AFC. Þá sagði Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands að hann teldi Infantino ekki lengur vera rétta manninn til að leiða FIFA áfram.

Allt þetta mál setur stöðu Infantino sem forseta FIFA í uppnám. Næsta forsetakjör fer fram í mars og var búist við að Infantino næði sjálfkrafa endurkjöri án mótspyrnu, en nú gæti staðan breyst ef verðugur andstæðingur stígur fram í sviðsljósið.

Asía mótmælir áformum FIFA - Yfirráðgjafi Infantino segir af sér
TENGT EFNI

Asía mótmælir áformum FIFA - Yfirráðgjafi Infantino segir af sér

FIFA hættir við áformin eftir hávær mótmæli
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.