Egill í Suitup velur fimm flottustu treyjurnar í enska

Egill í Suit Up.

Mynd: Suit Up

Egill í Suit Up.

Mynd: Suit Up
Félögin eru búin að gefa út búningana sína fyrir komandi keppnistímabil en það ríkir alltaf mikil eftirvænting fyrir því að sjá hvernig treyjurnar líta út.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða fimm treyjur stóðu upp úr að mati Egils og hvað það var sem heillaði hann við hverja þeirra.
Áhugasamir geta kynnt sér frábært úrval af jakkafötum Suitup með því að smella hér.

5. Leeds United - Útitreyja - Það er alltaf ákveðin áhætta að vinna með jafn sterkan og afgerandi lit og gulan, en Adidas tekst að halda fallegu jafnvægi í þessari treyju. Yorkshire rósin í mynstrinu gefur henni dýpt án þess að vera of áberandi og svörtu smáatriðin ramma allt svo fallega inn. Mér finnst þessi treyja frábært dæmi um útitreyju sem hefur sinn eigin karakter í stað þess að vera bara öðruvísi til að vekja athygli. Hún er djörf, en samt fáguð. Ég er spenntur að sjá íslenska Leedsarann sporta þessari á Tene í vetur eins og þeim einum er lagið. Sperrtur og sæll.

Mynd: Leeds

4. Liverpool - Heimatreyja - Liverpool og Adidas halda samstarfi sínu áfram með treyju sem sækir innblástur í blómaskeið félagsins án þess þó að líta út eins og endurgerð. Mynstrið sækir innblástur í hina goðsagnakenndu Candy treyju Liverpool úr níunni, en heildarútlitið er hreint og nútímalegt. Hönnunin er öguð og ekkert óþarfa prjál sem reynir að stela athyglinni. Ég er einstaklega ánægður með að Adidas hafi ákveðið að nota strípurnar þrjár frekar en Trefoil-merkið, það hefði verið ódýrt partýtrikk.

Mynd: Liverpool

3. Aston Villa - Heimatreyja - Stundum er besta hönnunin sú sem reynir ekki að gera of mikið. Ég er alltaf hrifinn af því þegar hönnuðir treysta litunum sínum. Aston Villa er með eina fallegustu litasamsetningu fótboltans og hér fær hún einfaldlega að njóta sín. Hönnunin er einföld, línurnar hreinar og ekkert sem truflar heildarmyndina eða reynir að stela athyglinni. Þetta er treyja sem verður líklega aldrei kölluð byltingarkennd, en hún þarf þess heldur ekki. Hún er einfaldlega vel hönnuð.

Mynd: Aston Villa

2. Manchester United - Útitreyja - Útitreyjur eiga að fá aðeins meira frelsi en heimatreyjur og mér finnst það nýtt vel hér. Dökkblái grunnurinn og rauðu smáatriðin skapa sterka tengingu við sögu félagsins á meðan klassíska Trefoil-merkið gefur treyjunni retro yfirbragð. Það sem heillar mig þó mest er að hún nær að sækja það besta úr sögunni, en tilheyrir þó nútímanum. Það finnst mér ekki alltaf auðvelt að gera og þegar það gengur upp, eins og hér, er útkoman hreint stórkostleg. Spenntur að klæðast þessari í leikhúsi draumanna í vetur.

Mynd: Man Utd

1. Coventry - Heimatreyja - Coventry er kannski ekki fyrsta liðið sem fólk horfir til þegar nýjar treyjur eru kynntar en að mínu mati er þetta ein besta treyjan í ár. Hummel nær að virða sögu félagsins án þess að festast í fortíðinni. Bláu og hvítu rendurnar gefa treyjunni meiri karakter en hefðbundin heilljósblá treyja og áferðin í efninu gerir hana enn áhugaverðari þegar maður fer á dýptina. Það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið, bara negla útfærsluna.

Mynd: Coventry
