31.07.26 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
PSG í viðræðum við Ajax

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Frakklands- og Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru í viðræðum við hollenska stórveldið Ajax um félagaskipti fyrir kantmanninn Mika Godts.

TENGT EFNI
Sófaliðið - Úrvalslið leikmanna sem voru ekki valdir á HM
PSG hefur mikinn áhuga á Godts sem er 21 árs gamall og með þrjú ár eftir af samningi.
Godts er belgískur landsliðsmaður með tvo A-landsleiki að baki en var ekki valinn í lokahópinn fyrir HM í sumar.
Hann kom með beinum hætti að 29 mörkum í 32 deildarleikjum á síðustu leiktíð og er fenginn til að fylla í skarðið sem Lee Kang-in skilur eftir sig í hópnum. Talið er að Ajax vilji fá 75 milljónir evra fyrir kantmanninn, en PSG vill ekki greiða mikið meira en 60 milljónir.
PSG er einnig að festa kaup á Magnhes Akliouche sem kemur úr röðum Mónakó og gæti fyllt í skarðið fyrir Bradley Barcola ef hann verður seldur.
Þar að auki virðist markvörðurinn Zion Suzuki vera á leið úr röðum Parma, en það er mikill áhugi á honum úr enska og ítalska boltanum.