31.07.26 - 20:53
Ívan Guðjón Baldursson
Birmingham hafði betur gegn Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það var nokkuð um æfingaleiki víða um Evrópu í dag þar sem Barcelona spilaði meðal annars við Birmingham City.
Börsungar tefldu fram ungu byrjunarliði þar sem margir lykilmenn eru enn að hvíla sig. Í byrjunarliðinu mátti finna Karim Adeyemi, Marc Bernal, Marc Casadó og Gerard Martín ásamt kempunum Wojciech Szczesny og Andreas Christensen. Hinn 18 ára Shane Kluivert fékk einnig tækifæri ásamt jafnaldra sínum Hamza Abdelkarim sem setti bæði mörk Barca í kvöld. Roony Bardghji kom inn af bekknum fyrir Adeyemi í hálfleik.
Birmingham náði forystunni en Abdelkarim, sem fór með Egyptalandi á HM í sumar, svaraði með tvennu. Englendingunum tókst þó að svara fyrir sig svo lokatölur urðu 2-2 í þessum skemmtilega æfingaleik og grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Þar hafði Birmingham betur eftir að Bardghji klúðraði af punktinum alveg eins og ungu leikmennirnir Jordi Pesquer og Brian Farinas gerðu.
Juventus lagði OGC Nice þá að velli með tveimur mörkum gegn engu. Brassinn Douglas Luiz skoraði fyrra markið snemma leiks og innsiglaði táningurinn Justin Oboavwoduo sigurinn á lokamínútunum, lokatölur 2-0.
Nantes skoraði fimm mörk gegn Luis Alberto og félögum í liði Al-Wakra frá Katar, þar sem Bahmed Deuff setti þrennu. Como hafði svo betur eftir skemmtilegan markaleik gegn Famalicao þar sem Anastasios Douvikas reyndist hetja spútnik liðs ítölsku deildarinnar með tvennu.
Mónakó gerði svo jafntefli við Cercle Brugge á meðan Mainz lagði Shabab Al-Ahli frá Dúbaí að velli.
Birmingham 2 - 2 Barcelona
3-2 í vítaspyrnukeppni
Juventus 2 - 0 Nice
Nantes 5 - 1 Al-Wakra
Famalicao 2 - 3 Como
Monaco 2 - 2 Cercle Brugge
Mainz 1 - 0 Shabab Al-Ahli Dubai