Stórkostlegur þegar mest á reyndi - „Elska svona leiki og pressuna sem fylgir þeim"

Var líka frábær í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi skoraði öll mörk Vals í einvíginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafði sterka tilfinningu fyrir því hvert Bilbija myndi skjóta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk hjálp frá markmannsþjálfaranum.

Mynd: Valur

Reynsluboltinn skoraði úr fyrra vítinu en Frederik las hann í seinna vítinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég elska svona leiki og pressuna sem fylgir þeim'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri ekki ánægður með minn leik.'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Allir eiga þátt í árangrinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var líka frábær í fyrri leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur og Stjarnan hefðu farið áfram með hann í markinu
Mikil virðing á Tryggva
Valur leiddi einvígið með einu marki eftir fyrri leikinn og leikurinn í gær endaði 2-2. Það var mikill hiti í Hersegóvínu en Tryggvi Hrafn Haraldsson lét það ekki trufla sig og skoraði bæði mörk Vals í gær eftir að hafa skorað markið í fyrri leiknum líka.
„Leikurinn í gær var erfiður, sérstaklega vegna hitans."
„Við áttum erfitt með að finna taktinn á boltanum og vorum aftur háðir Paddy (Patrick Pedersen) og Tryggva, sem eru svo hæfileikaríkir að þeir þurfa bara lítið pláss og nokkur færi til að skora."
„Mikil virðing á Tryggva fyrir að takast á við aðstæðurnar sem hann er í," segir Frederik en Tryggvi mun yfirgefa Val í síðasta lagi eftir tímabilið þar sem hann er búinn að semja við ÍA.
Vann heimavinnuna og las Bilbija á ögurstundu
Frederik átti magnað einvígi og í gær varði hann víti á ögurstundu þegar Zrinjski gat jafnað metin í einvíginu. Hvað fór í gegnum huga hans í aðdraganda vítaspyrnunnar?
„Markmannsþjálfarinn minn, Emil (Larsen), og ég höfðum gert mikla rannsókn á (Nemanja) Bilbija, sem hafði skotið 9 af síðustu 10 vítum sínum í vinstra hornið frá mér séð. Eftir að hann skoraði úr fyrra vítinu með vippu hafði ég sterka tilfinningu fyrir því að hann myndi velja uppáhaldsstaðinn til að skjóta á í lokin á erfiðum og mikilvægum leik þar sem mikil pressa var á honum."
Bjarni Mark Antonsson var sá brotlegi, fékkstu einhverjar auka þakkir frá honum?
„Við erum lið og mistök gerast alltaf - Bjarni gefur svo mikið til hópsins, og sérstaklega til erlendu leikmannanna, svo hann er mikilvægur fyrir okkur."
Ánægður með sjálfan sig og elskar svona leiki
Frederik varði alls 20 skot í leikjunum tveimur. Ertu sáttur með sjálfan þig?
„Frábært að geta lagt sitt af mörkum svo Valur nái árangri, þar sem við höfum átt erfitt tímabil hingað til. Ég elska svona leiki og pressuna sem fylgir þeim. Ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri ekki ánægður með minn leik."
„Mér leið þannig í báðum leikjunum að ég væri með þá þegar kom að þeirra afgreiðslum, og það er mjög erfitt að skora gegn mér þegar ég á þannig daga. Það er eitthvað sérstakt við það að spila í Evrópu."
Fyrir tæpu ári síðan átti Frederik frábæran leik í Litháen gegn Kauno Zalgiris og hann er þekktur vítabani. Hann blandaði núna saman frábærum Evrópuleik og vörðu víti.
Allir eiga þátt í árangrinum
Eru einhverjir aðrir sem Frederik vill hrósa?
„Ég hef nefnt Tryggva og Paddy, en ég gæti nefnt alla. Allir í hópnum og þjálfarateymið eiga hlut í því að við komumst áfram eftir þessa tvo leiki."
Öflugur andstæðingur bíður
Nordsjælland bíður Vals í næstu umferð. Frederk var spurður hvernig það einvígi leggst í hann og hvort hann þekki til leikmanna í hópnum þar.
„Þetta er mjög öflugur andstæðingur. Ég þekki fáa leikmenn - en ég fylgist með dönsku úrvalsdeildinni og veit hvaða gæði eru í hópnum. Þeir eru sérstaklega erfiðir við að eiga á sínum heimavelli," segir Frederik að lokum.
Nordsjælland sló í gær GAIS úr leik með því að vinna 6-0 á heimavelli sínum í Danmörku.
Næsti leikur Vals er heimaleikur gegn Stjörnunni á mánudagskvöld í Bestu deildinni. Hér að neðan má sjá það helsta úr leiknum í gær, m.a. vítavörslu Frederiks.

Tryggvi skoraði öll mörk Vals í einvíginu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafði sterka tilfinningu fyrir því hvert Bilbija myndi skjóta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fékk hjálp frá markmannsþjálfaranum.

Mynd: Valur

Reynsluboltinn skoraði úr fyrra vítinu en Frederik las hann í seinna vítinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég elska svona leiki og pressuna sem fylgir þeim'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri ekki ánægður með minn leik.'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Allir eiga þátt í árangrinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


