Fotbolti.net
31.07.26 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson

Leikmaður Sigga Ragga í evrópskar sögubækur

Leikmaður Sigga Ragga í evrópskar sögubækur
Canon

Mynd: NSÍ Runavík

Marius Kryger Lindh, lærisveinn Sigurðs Ragnars Eyjólfssonar í liði NSÍ Runavík, er kominn í sögubækur evrópska boltans eftir að hafa skorað mark í forkeppni Sambandsdeildarinnar á dögunum.
NSÍ afrekaði hið ótrúlega með að slá Koper frá Slóveníu úr leik eftir að hafa tapað heimaleiknum 0-2. NSÍ svaraði fyrir sig í útileiknum í Slóveníu og náði að knýja fram vítaspyrnukeppni eftir dramatískt jöfnunarmark á 122. mínútu. Færeyingarnir höfðu betur í vítakeppninni og mæta Lugano frá Sviss í næstu umferð forkeppninnar.

Fyrrnefndur Marius Kryger Lindh skoraði annað mark NSÍ gegn Koper á 70. mínútu leiksins og varð þar með fyrsti einhenti leikmaðurinn til að skora í Evrópukeppni í 63 ár, eða síðan 1963.

Það vantar annan handlegginn á Marius en síðasti einhenti markaskorarinn í Evrópukeppni var Jimmy Hasty, fyrrum leikmaður Dundalk FC. Hann skoraði í 2-1 sigri Dundalk gegn FC Zürich í gömlu Evrópukeppni bikarhafa.

Marius er 27 ára Dani sem hefur áður spilað fyrir AB og B36 í færeyska boltanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.