Fotbolti.net
31.07.26 - 21:31
Ívan Guðjón Baldursson

Howe: Finn í hjartanu að þetta er rétt ákvörðun

Howe: Finn í hjartanu að þetta er rétt ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Eddie Howe gaf út langa yfirlýsingu eftir að hafa sagt starfi sínu sem aðalþjálfari Newcastle lausu í dag.
Newcastle tilkynnir um brotthvarf Howe (Staðfest)
TENGT EFNI

Newcastle tilkynnir um brotthvarf Howe (Staðfest)

Howe yfirgefur Newcastle eftir fimm ár við stjórnvölinn en það er tími mikilla breytinga innan félagsins eftir að margir lykilmenn hafa verið seldir að undanförnu. Sandro Tonali og Anthony Gordon voru seldir í sumar eftir að Alexander Isak var seldur í fyrrasumar.

Fyrirliðinn Bruno Guimaraes er þá líklega á leið til Arsenal og ljóst að Newcastle mun þurfa að endurbyggja leikmannahópinn sinn í sumar eftir mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð.

„Þetta er mjög erfið ákvörðun sem ég tek en ég tel hana vera rétta bæði fyrir mig og félagið. Þetta er rétti tíminn fyrir mig til að stíga til hliðar eftir fimm ár af þrotlausri vinnu hérna. Ég lagði hjarta mitt og sál í félagið," segir í yfirlýsingunni frá Howe.

„Ég veit í hjarta mínu að þetta er rétt ákvörðun að taka. Ég hef borið hag Newcastle United framyfir minn eigin í hverri einustu ákvörðun sem ég hef tekið á dvöl minni hér og ætla ekki að breyta því núna. Það hafa verið algjör forréttindi fyrir mig að þjálfa þetta æðislega fótboltafélag. Ég þakka fyrir mig og óska félaginu alls hins besta í framtíðinni. Það er erfitt að kveðja Newcastle fjölskylduna, hérna líður mér eins og ég sé heima hjá mér."

Það verður afar spennandi að fylgjast með hvaða verkefni Howe tekur næst að sér. Hann gerði magnaða hluti við stjórnvölinn hjá Bournemouth áður en hann var ráðinn til Newcastle og eru margir Englendingar sem vilja sjá hann taka við enska landsliðinu í framtíðinni.

Bruno Guimaraes kvaddi kónginn
TENGT EFNI

Bruno Guimaraes kvaddi kónginn

Howe: Finn í hjartanu að þetta er rétt ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Howe: Finn í hjartanu að þetta er rétt ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.