 
                                                                                        
                        
                                    
                                                    
                
                                                                
                Brenna Lovera hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Selfoss til tveggja ára.
                
                
                                    Lovera, sem er 24 ára gömul, kom til liðs við Selfoss í vor frá Boavista í Portúgal.
Hún hefur heldur betur slegið í gegn í Pepsi Max deildinni í sumar, er markahæst í deildinni með 13 mörk í 14 leikjum og var meðal annars valin besti leikmaður fyrsta þriðjungs Íslandsmótsins hjá Fótbolta.net.
„Þetta er búið að vera gott tímabil. Selfoss er frábært félag með jafnvel enn betra samfélag á bakvið sig. Ég er mjög spennt fyrir því að framlengja samninginn minn á stað sem mér finnst vera eins og heimili að heiman. Ég get ekki beðið eftir því að byggja ofan á það sem við höfum gert á þessu tímabili,” segir Brenna.
Selfoss er þessa stundina í fjórða sæti Pepsi Max-deildarinnar, einu stigi frá Þrótti í þriðja sæti.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
     
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
        