Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 01. september 2022 16:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brighton að kaupa Gilmour á tíu milljónir punda
Mynd: EPA
Billy Gilmour er að verða leikmaður Brighton. Hann er þessa stundina í læknisskoðun hjá félaginu.

Brighton er að kaupa miðjumanninn frá Chelsea og er kaupverðið talið vera um tíu milljónir punda.

Gilmour er 21 árs skoskur landsliðsmaður sem kom til Chelsea árið 2017. Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Norwich en náði ekki að slá í gegn þar.

Hann vakti mikla athygli þegar hann lék með skoska landsliðinu gegn því enska á EM síðasta sumar.

Gilmour lék sína fyrstu leiki fyrir Chelsea tímabilið 2019-2020 og hefur alls leikið 22 keppnisleiki fyrir aðalliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner