Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. september 2022 09:56
Elvar Geir Magnússon
Tuchel sektaður fyrir ummæli sín um Taylor
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, fékk 20 þúsund punda sekt fyrir ummæli sín um Anthony Taylor dómara. Tuchel sagði að Taylor ætti ekki að dæma fleiri leiki með Chelsea.

Tuchel var brjálaður eftir 2-2 jafntefli gegn Tottenham í nýliðnum mánuði og lét Taylor heyra það.

Tuchel ýjaði að því eftir leik að leikmannahópurinn væri ekkert sérlega hrifinn af því að Taylor væri að dæma leiki hjá liðinu. Það væri eitthvað skrítið í gangi þarna.

Enska fótboltasambandið var ekki sátt með þessi ummæli og segir að Tuchel hafi sýnt vanvirðingu.

Áður hafði Tuchel fengið 35 þúsund punda sekt fyrir átök sín við Antonio Conte, stjóra Tottenham, eftir umræddan leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner