01.09.26 - 20:46
Kári Snorrason
Aron segir KR hafa tekið fram úr Víkingi - „Þeir eru bensínlausir og haltrandi“
Auglýsing

„Ef þeim tekst að haltra í átt að þessum titli þá klappa ég fyrir þeim. En við erum að koma,

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér finnst við hafa tekið fram úr þeim.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ef þeim tekst að haltra í átt að þessum titli þá klappa ég fyrir þeim. En við erum að koma,

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Ég er svekktur. Jú, úr því sem komið var var fínt að jafna þetta. Seinni hálfleikurinn var okkar. Fyrir utan einhverjar mínútur hér og þar þá áttum við seinni hálfleikinn,“ sagði Aron Sigurðarson, fyrirliði KR eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Víkingi á Meistaravöllum í kvöld.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Víkingur R.
„Við erum að spila á móti góðu liði. Góðu bensínlausu, haltrandi liði. Við eigum bara að vinna þá. Þeir eiga eftir að tapa stigum, það er allt opið í þessu. Við þurfum að gera okkar og sjá hvar það skilar okkur,“ sagði Aron jafnframt.
Átta stig eru á milli KR og Víkings. Er raunhæfur möguleiki að þið getið unnið Íslandsmeistaratitilinn. „Þetta er galopið. Við þurfum að gera okkar. Við keyrum á þetta,“ sagði Aron og var í kjölfarið spurður um muninn á liðunum í leik kvöldsins.
„Mér finnst við hafa tekið fram úr þeim. Erum besta liðið á landinu í dag. Við hugsum um okkur. Það tók okkur tvö ár að verða besta lið landsins. Ef þeim tekst að haltra í átt að þessum titli þá klappa ég fyrir þeim. En við erum að koma,“ sagði Aron að lokum.
Átta stig eru á milli KR og Víkings. Er raunhæfur möguleiki að þið getið unnið Íslandsmeistaratitilinn. „Þetta er galopið. Við þurfum að gera okkar. Við keyrum á þetta,“ sagði Aron og var í kjölfarið spurður um muninn á liðunum í leik kvöldsins.
„Mér finnst við hafa tekið fram úr þeim. Erum besta liðið á landinu í dag. Við hugsum um okkur. Það tók okkur tvö ár að verða besta lið landsins. Ef þeim tekst að haltra í átt að þessum titli þá klappa ég fyrir þeim. En við erum að koma,“ sagði Aron að lokum.

„Mér finnst við hafa tekið fram úr þeim.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 21 | +46 | 52 |
| 2 | KR | 21 | +27 | 44 |
| 3 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 21 | +3 | 30 |
| 5 | Keflavík | 21 | -4 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Stjarnan | 21 | -8 | 27 |
| 8 | Valur | 21 | -7 | 24 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |
