01.09.26 - 23:41
Brynjar Ingi Erluson
Balogun hætti við að ganga til liðs við Everton

Folarin Balogun fer ekki til Everton

Mynd: EPA

Folarin Balogun fer ekki til Everton

Mynd: EPA
Framherjinn Folarin Balogun fer ekki til Everton frá Mónakó, en hann hætti við að ganga í raðir félagsins eftir að enska félagið gerði breytingu á samkomulaginu.
Sagan um Balogun hefur verið með ólíkindum og raunar allt sem tengist Mónakó á lokadegi félagaskiptagluggans.
Franska félagið ætlaði sér að selja einn leikmann fyrir gluggalok til að afla tekna og átti Balogun að verða fyrir valinu. Mónakó samþykkti tilboð Everton og gekkst framherjinn undir læknisskoðun en þar kom eitthvað upp sem setti félagaskiptin í uppnám.
Mónakó ákvað því að samþykkja tilboð Chelsea í Lamine Camara en hætti síðan við söluna þegar Everton hélt áfram að reyna að ganga frá kaupunum á Balogun.
Everton hafði skilað inn gögnum til enska fótboltasambandsins til að fá viðbótartíma til að klára félagaskiptin en ákvað síðan að breyta samkomulaginu. Balogun snerist þá hugur og hafnaði því að ganga til liðs við Everton.
Mónakó ætlaði að selja annaðhvort Camara eða Balogun en nú verða þeir líklega báðir áfram. Félagið getur ekki lengur selt Camara til Chelsea enda neitaði það að skrifa undir gögnin sem hefðu veitt Lundúnafélaginu frest til að ljúka allri pappírsvinnu.
Ef Balogun er æstur í að fara á enn enn möguleika á að fara til Sádi-Arabíu, Tyrklands eða Portúgal.