01.09.26 - 16:40
Kári Snorrason
Byrjunarlið KR og Víkings: Bæði lið gera tvær breytingar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stórleikur KR og Víkings hefst klukkan 17:30 á Meistaravöllum. Búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.
Lestu um leikinn: KR 1 - 1 Víkingur R.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 3-5 sigri liðsins gegn KA í síðustu umferð Bestu deildarinnar.
KR endurheimtir þá Finn Tómas og Arnór Ingva aftur úr leikbanni og eru þeir í byrjunarliði liðsins á kostnað Michael Akoto og Sigurðar Breka.
Jason Daði Svanþórsson er fjarri góðu gamni og er ekki í hóp vegna meiðsla.
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir sömuleiðis tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 1-3 tapi gegn Borac Banja Luka í Bosníu og Hersegóvínu.
Gunnar Vatnhamar lék þar sinn síðasta leik fyrir Víking en hann er á förum frá félaginu og á leið til Vejle í dönsku B-deildinni. Í hans stað í vörninni kemur Sveinn Gísli Þorkelsson.
Þá víkur Viktor Örlygur Andrason sömuleiðis úr byrjunarliði Víkings og í hans stað kemur Daníel Hafsteinsson sem hefur verið frá vegna meiðsla undanfarinn mánuð.

Byrjunarlið KR
- 12. Halldór Snær Georgsson (m)
- 7. Finnur Tómas Pálmason
- 9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
- 11. Aron Sigurðarson (f)
- 17. Luke Morgan Conrad Rae
- 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
- 22. Ástbjörn Þórðarson
- 23. Arnór Ingvi Traustason
- 26. Hrafn Tómasson
- 45. Galdur Guðmundsson
- 77. Orri Hrafn Kjartansson
Byrjunarlið Víkingur R.
- 29. Aron Snær Friðriksson (m)
- 2. Sveinn Gísli Þorkelsson
- 4. Peter Oliver Ekroth (f)
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 11. Daníel Hafsteinsson
- 21. Aron Elís Þrándarson
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 70. Hrannar Snær Magnússon
- 77. Stígur Diljan Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð