Fotbolti.net
01.09.26 - 10:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sölvi Geir: Það kemur mér ekkert á óvart með KR

Ég myndi samt sem áður segja að það sé margt jákvætt sem við getum tekið úr Evrópuverkefninu núna

Ég myndi samt sem áður segja að það sé margt jákvætt sem við getum tekið úr Evrópuverkefninu núna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:30 í dag tekur KR á móti Víkingi á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í toppslag Bestu deildarinnar, átta stig skilja liðin að fyrir leikinn; Víkingur er á toppnum og KR er í 3. sæti.

Víkingur kemur inn í leikinn eftir að hafa tapað gegn Borac Banja Luka í Sambandsdeildarumspilinu. Liðið spilaði síðast á fimmtudag í Bosníu.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í gær.
Líkleg byrjunarlið í stórleiknum - Tveir snúa aftur hjá KR og enginn Vatnhamar
TENGT EFNI

Líkleg byrjunarlið í stórleiknum - Tveir snúa aftur hjá KR og enginn Vatnhamar

Ástæðan fyrir því að maður er í fótbolta
„Það er bara geggjað, þetta er stór leikur, engin spurning. Bæði lið vita hvað er undir, ástæðan fyrir því að maður er í fótbolta eru svona leikir sem er mikill æsingur í kringum. Við þurfum að hugsa um að spila leikinn, ekki hugsa um stærð hans," segir Sölvi Geir.

Öll einbeitingin á Bestu deildina
Hvernig er fyrir ykkur að koma inn í þennan leik eftir vonbrigðin á fimmtudag?

„Það er bara búið, Evrópan er búin. Við erum svekktir að hafa ekki náð markmiðunum okkar þar, en það er ekkert sem mun fylgja okkur inn í þennan leik. Þetta er bara nýtt verkefni og öll einbeitingin er á KR og Bestu deildina núna."

Náðu að æfa vel - Daði Berg meiddist
Eru allir með sem voru með á fimmtudaginn, fyrir utan Gunnar?

„Já, það eru allir með, engar breytingar. Hópurinn er góður. Daði Berg fékk smá bakslag, en ég á ekki von á því að hann verði lengi frá. Annars eru allir heilir og til taks. Við náðum góðri æfingu í fyrsta skiptið í langan tíma, náðum smá ákefð. Við höfum fundað vel og undirbúið okkur vel fyrir leikinn. Leikmenn eru gíraðir í þetta verkefni."

Mikill söknuður af stríðsmanninum og sigurvegaranum Gunnari
Hvernig fyllir maður í skarðið sem Gunnar Vatnhamar skilur eftir sig, ef það er hægt?

„Eins og ég hef sagt áður þá erum við fyrst og fremst að kveðja góða persónu, hann lagði líf sitt og sálu í verkefnið. Hann er góð fyrirmynd fyrir aðra leikmenn hvernig á að bera sig á æfingum og utan æfinga. Það verður klárlega mikill söknuður af þessum mikla stríðsmanni og sigurvegara."

Ögmundur klár
Hvernig er staðan á Ögmundi Kristinssyni?

„Hann lenti í meiðslum í Evrópu, hann hefur verið að æfa á fullu og hann er partur af hópnum núna."

Getum ekki farið að verja eitthvað forskot
Manni líður eins og KR þurfi að vinna til að búa til alvöru mót úr þessu. Hvernig nálgist þið leikinn?

„Við nálgumst leikinn eins og hvern annan, við förum inn í alla leiki til þess að vinna þá og undirbúum okkur fyrir alla leiki svo við eigum bestan möguleika á því að vinna. Við erum ekki byrjaðir að horfa í töfluna, það er nóg eftir af mótinu og við þurfum að einbeita okkur að frammistöðunni gegn KR. Við þurfum að fara þangað án þess að vera að bíða eftir einhverju, við getum ekki horft á töfluna og farið að verja eitthvað forskot. Við ætlum að taka frumkvæðið þegar augnablikin gefast og á sama tíma vera yfirvegaðir og agaðir. Við viljum ná að spila okkar leik eins og við viljum spila, en erum viðbúnir því eins og í öllum leikjum að þurfa verjast sem ein liðsheild. KR-ingar eru góðir í því sem þeir gera, þeir eru með hörku sóknarlið sem hefur reynst mörgum erfitt að stoppa."

Kemur ekkert á óvart með KR
Víkingur vann afskaplega sannfærandi 0-7 sigur í Vesturbænum fyrir tæpu ári síðan og fyrri leikurinn á þessu ári endaði með 2-0 sigri Víkings í Víkinni. Það var frekar jafn leikur ef mig misminnir ekki, kom þér á óvart hversu nálægt ykkur þeir voru komnir?

„Það svo sem kemur mér ekkert á óvart með KR-inga. Þetta er gott lið sem er búið að bæta sig frá síðasta ári. Þeir hafa verið heppnir með meiðsli, ekki verið að missa lykilleikmenn í meiðsli hjá sér. Þeir hafa fengið góð frí á milli leikja og gert þetta vel. Þeir hafa veitt okkur mikla samkeppni á toppnum ásamt Fram. Það kom mér ekkert á óvart, það er alltaf mjög erfitt að spila við KR-inga, við þurfum að vera rétt stilltir, gera hlutina rétt og þá komum við okkur í góða stöðu."

Telur leiktímann ekki hafa áhrif
Leikurinn hefst klukkan 17:30, er svekkjandi að svona stór leikur hefjist svona snemma?

„Ég hef svo sem ekkert spáð í því, ef það er út af því að það eru ekki flóðljós þá er ekkert sem er hægt að gera í því. Þá þarf að spila snemma, þetta er það stór leikur að ég efast ekki um að fólk muni mæta á leikinn, fylla stúkuna og búa til stemningu. Það að hann sé svona snemma skiptir okkur þjálfara og leikmenn ekki máli. Ég býst við góðri mætingu og góðri stemningu, tel þetta ekki hafa nein áhrif."

Leonídas á móti Persum
Hversu mikilvægt er að Víkingar vinni baráttuna í stúkunni?

„Það er mikilvægt að við fáum stuðning frá Víkingsstuðningsmönnum eins og þeir hafa gert allt tímabilið. Þeir hafa verið stór partur í okkar vegferð og okkar velgengni. Þeir hafa stutt fast við bakið á okkur, verið hrikalega öflugir að mæta á útileiki. Ég býst ekki við öðru en að þeir geri allt til að styðja við okkur, en það hvor sveitin vinnur stúkuna, það veit ég ekki."

„Verður þetta ekki ójafnt hlutfall í stúkunni og við í smá skoti í horninu? Í 300 sögunni unnu 300 stríðsmenn Spörtu heilan her Persaveldis. Mínir menn í stúkunni þurfa bara að hafa meiri læti og láta meira í sér heyra til að yfirgnæfa massann."


Heimaleikurinn gegn Borac mesta svekkelsið
Eins og þú sagðir áðan þá er Evrópa búin hjá ykkur. Hvar finnst þér fara frá ykkur?

„Það er heimaleikurinn. Við gáfum þetta frá okkur þar. Við fengum klaufalega mörk á okkur sem voru mjög dýrkeypt. Síðasta markið þeirra var skot sem fór af manni og í netið, óheppni. Það mark gerði þetta rosalega erfitt. Það vantaði að nýta okkar leik betur á mill teiga, koma okkur í betri stöður. Við áttum slæman dag í færasköpun, gerðum hlutina of hægt."

„Við misstum aldrei trúna og settum okkur í góða stöðu úti með fyrri hálfleiknum sem við spiluðum. Því miður náðum við ekki að fylgja því á eftir í seinni hálfleiknum. Við vorum ekki nógu skilvirkir í því að verja teiginn okkar. Þeir jöfnuðu svo aftur með marki sem fer af manni og í netið, breytir um stefnu og óheppnisstimpill yfir því. Við vorum ekki búnir að opna okkur mikið, en brekkan var orðin brött. Þeir voru góðir í því að hægja á leiknum og mér fannst dómarinn taka þátt í því að hægja á honum. Hann er þekktur fyrir því að taka heilu ræðurnar og spjöllin við leikmenn og það drap tempóið. Við náðum ekki að fá tempó í seinni hálfleikinn og við vorum ekki nógu skilvirkir í teigunum."

„Ég myndi samt sem áður segja að það sé margt jákvætt sem við getum tekið úr Evrópuverkefninu núna. Það eru stóri andstæðingar, Györ sem við fórum í gengum, og svo ísraelsku meistararnir og svissnesku meistararnir sem við gáum alvöru leik. Við getum verið stoltir með þær viðureignir - vorum mjög nálægt því að fara í gegnum þessi stórlið og koma okkur áfram í Evrópu. Mesta svekkelsið er að hafa ekki náð betri frammistöðu gegn andstæðingnum sem við áttum fyrirfram mestan möguleika gegn (Borac),"
sagði Sölvi þegar hann ræddi við Fótbolta.net í gær.
Við ætlum að taka frumkvæðið þegar augnablikin gefast og á sama tíma vera yfirvegaðir og agaðir

Við ætlum að taka frumkvæðið þegar augnablikin gefast og á sama tíma vera yfirvegaðir og agaðir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þeir hafa fengið góð frí á milli leikja og gert þetta vel. Þeir hafa veitt okkur mikla samkeppni á toppnum ásamt Fram

Þeir hafa fengið góð frí á milli leikja og gert þetta vel. Þeir hafa veitt okkur mikla samkeppni á toppnum ásamt Fram

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úr fyrri leik þessara liða.

Úr fyrri leik þessara liða.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Gunnar Vatnhamar er að kveðja eftir að hafa verið einn allra besti leikmaður deildarinnar frá komunni 2023.

Gunnar Vatnhamar er að kveðja eftir að hafa verið einn allra besti leikmaður deildarinnar frá komunni 2023.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg er meiddur.

Daði Berg er meiddur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ögmundur Kristinsson er mættur aftur í hóp Víkings eftir meiðsli.

Ögmundur Kristinsson er mættur aftur í hóp Víkings eftir meiðsli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við erum ekki byrjaðir að horfa í töfluna, það er nóg eftir af mótinu og við þurfum að einbeita okkur að frammistöðunni gegn KR

Við erum ekki byrjaðir að horfa í töfluna, það er nóg eftir af mótinu og við þurfum að einbeita okkur að frammistöðunni gegn KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stuðningsmenn Víkings.

Stuðningsmenn Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þetta er bara nýtt verkefni og öll einbeitingin er á KR og Bestu deildina núna

Þetta er bara nýtt verkefni og öll einbeitingin er á KR og Bestu deildina núna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.