01.09.26 - 20:14
Brynjar Ingi Erluson
Zirkzee sagður á leið til Everton

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollenski sóknarmaðurinn Joshua Zirkzee er sagður á leið til Everton frá Manchester United.
Everton hefur unnið að því að fá bandaríska landsliðsmanninn Folarin Balogun frá Mónakó en hann féll á læknisskoðun. Enska félagið leitar því að öðrum kosti þótt enn sé ekki útilokað að skiptin gangi í gegn.
Ef Everton tekst ekki að landa Balogun er Zirkzee líklegasti kosturinn. Ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto segir Hollendinginn á leið til Everton en Fabrizio Romano tekur fram að Manchester United eigi enn eftir að ákveða hvort félagið sé reiðubúið að láta hann fara.
Zirkzee hefur þegar hafnað tilboðum frá Ítalíu og því ríkir enn óvissa um framhaldið.
Hollendingurinn á ekki mikinn spilatíma í vændum hjá United á þessari leiktíð en hefur hingað til sagst tilbúinn að berjast fyrir sæti sínu í liðinu.