Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 01. október 2020 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
Deildabikarinn: Arsenal sló Liverpool úr leik
Mynd: Getty Images
Liverpool 0 - 0 Arsenal
4-5 í vítaspyrnukeppni

Englandsmeistarar Liverpool eru dottnir úr leik í enska deildabikarnum eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn Arsenal.

Liðin mættust í öðrum leiknum á nokkrum dögum á Anfield en Liverpool vann 3-1 sigur í úrvalsdeildarleik á mánudaginn. Þá tefldu báðir stjórar sínum sterkustu liðum fram.

Í dag fengu varamenn séns á að spreyta sig og reyndust heimamenn í Liverpool mun betri frá fyrstu mínútu. Þeir áttu þó í basli með að skora framhjá Bernd Leno sem átti stórleik í marki Arsenal.

Leno hélt sínum mönnum inni í leiknum og náði að knýja fram vítaspyrnukeppni þar sem hann varði svo tvær spyrnur, frá Divock Origi og Harry Wilson.
Athugasemdir
banner
banner
banner