Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 01. október 2020 21:47
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: Jafnt hjá Augnablik og Völsungi
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Augnablik 1 - 1 Völsungur
1-0 Björk Bjarmadóttir ('11)
1-1 Krista Eik Harðardóttir ('65)

Augnablik og Völsungur áttust við í eina leik dagsins í Lengjudeild kvenna og kom Björk Bjarmadóttir Kópavogsstúlkum yfir snemma leiks.

Mark hennar reyndist þó ekki nóg gegn botnliðinu frá Húsavík því Krista Eik Harðardóttir jafnaði á 65. mínútu.

Meira var ekki skorað í leiknum og jafntefli niðurstaðan. Völsungur er tíu stigum frá öruggu sæti í Lengjudeildinni á meðan Augnablik siglir lygnan sjó um miðja deild.

Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner