Risatilboði Chelsea hafnað - Tekur Nuno við West Ham? - Tveir á blaði United - Ungur miðvörður til Arsenal?
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
Bjarni Guðjón: Það er gaman að vera Þórsari í dag
„Fullyrði að ekki nokkur leikmaður hefur bætt sig jafn mikið eftir þrítugt"
Rúnar: Þá tekur þú ekki besta leikmanninn í liðinu útaf
Hallgrímur Mar: Getum engum öðrum en sjálfum okkur um kennt
Heimir: Þeir voru að svæfa leikinn og komust upp með það
Jón Daði: Þarf að komast í burtu frá fótbolta og hreinsa hugan
   fim 01. október 2020 22:43
Kristófer Jónsson
Rúnar Páll: Sýndum karakter að jafna
Rúnari fannst hann eiga skilið meira.
Rúnari fannst hann eiga skilið meira.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var nokkuð brattur eftir 1-1 jafntefli sinna manna gegn FH í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Stjarnan jafnaði leikinn í uppbótartíma.

„Heilt yfir er ég ánægður með spilamennskuna hjá okkur í kvöld og við áttum skilið að vinna leikinn miðað við færin sem að við fengum. Síðan kemur svona aukaspyrna og fókusleysi á að taka manninn sinn og ég er óánægður með það." sagði Rúnar eftir leikinn í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 FH

Stjörnumenn voru, eins og Rúnar Páll segir, mun hættulegri aðilinn í leiknum allt þar til að FH-ingar skoruðu með marki frá Pétri Viðarssyni.

„Við vorum miklu betri í fyrri hálfleik og síðustu 25 mínúturnar af þessum leik. Við herjuðum á þetta mark og sýndum karakter að jafna svona í lokin. "

Stjörnumenn eru í fjórða sæti eftir leikinn í kvöld með jafn mörg stig og Breiðablik og Fylkir sem að eru í þriðja og fimmta sæti og því ljóst að hörð Evrópubarátta er framundan.

„Mér lýst hrikalega vel á framhaldið. Það er gaman að spila við svona aðstæður og inní október og vonandi verður veðrið svona frábært. Það er bara Fjölnir á sunnudaginn og við þurfum að eiga góðan leik þar." sagði Rúnar Páll að lokum.

Nánar er rætt við Rúnar Pál í spilaranum að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner