31.10.26 - 11:19
Brynjar Ingi Erluson
Stigagjöfin í Ballon d'Or hjá konunum - Mikill munur á öðru og þriðja sæti

Alexia Putellas

Mynd: EPA

Alexia Putellas

Mynd: EPA

Alexia Putellas vann Ballon d'Or í þriðja sinn á ferlinum á verðlaunahátíðinni sem fór fram í Lundúnum á mánudag, en L'Equipe hefur nú birt niðurstöður atkvæðagreiðslunnar.

TENGT EFNI
Vann Ballon d'Or í þriðja sinn - Barcelona sópaði að sér verðlaunum
Putellas var vel að verðlaununum komin, en hún vann þrennuna með Börsungum á síðasta tímabili þar sem hún skoraði 26 mörk og lagði upp önnur fimmtán.
Hún jafnaði jafnframt met fyrrum liðsfélaga síns hjá Barcelona, Aitana Bonmatí, en þær hafa nú báðar unnið Ballon d'Or þrisvar sinnum.
Putellas, sem gekk til liðs við London City Lionesses í sumar, vann nokkuð þægilegan sigur og fékk 86 stigum meira en Ewa Pajor, framherji Barcelona.
Putellas hlaut samtals 618 stig og þær Pajor voru í algjörum sérflokki, en Khadija Shaw hafnaði í þriðja sæti með 344 stig.
Alls voru fimm leikmenn Barcelona á meðal tíu efstu í kjörinu, en Bonmatí var ekki tilnefnd þar sem hún hafði verið frá vegna meiðsla stóran hluta tímabilsins.
Stigagjöfin:
1. Alexia Putellas (618)
2. Ewa Pajor (532)
3. Khadija Shaw (344)
4. Melchie Dumornay (342)
5. Patri Guijarro (221)
6. Caroline Graham Hansen (220)
7. Pernille Harder (220)
8. Claudia Pina (155)
9. Alessia Russo (155)
10. Temwa Chawinga (113)

Retrouvez les votes des 50 jurés du Ballon d'Or femmes de l'édition 2026 ?? https://t.co/E8GusvNu9y https://t.co/WjflGNDMuh
— L'Équipe (@lequipe) October 30, 2026