31.10.26 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Segja Liverpool í sambandi við bróður Trent

Trent Alexander-Arnold í leik með Real Madrid

Mynd: EPA

Trent gæti snúið aftur á Anfield

Spænski miðillinn Ser Deportivo heldur því fram að Liverpool sé komið í samband við umboðsmann Trent Alexander-Arnold vegna mögulegrar endurkomu hans til félagsins frá Real Madrid í janúar.
Trent yfirgaf Liverpool á síðasta ári og gekk í raðir Madrídinga, en brottförin fór ekki sérstaklega vel í stuðningsmenn enska félagsins. Hann neitaði að skrifa undir nýjan samning og Liverpool fékk aðeins tíu milljónir evra fyrir hann, en það var einungis vegna þess að Real Madrid vildi fá hann fyrr til að geta notað hann á HM félagsliða.
Dvöl hans hjá Madrídingum hefur verið allt annað en draumur. Hann er nú orðinn þriðji kostur í hægri bakvarðarstöðuna og hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í fjórum af þrettán leikjum liðsins á tímabilinu.
Undanfarið hefur verið rætt um að Trent gæti yfirgefið Real Madrid í janúarglugganum og samkvæmt Ser Deportivo hefur Liverpool mikinn áhuga á að fá hann aftur. Viðræður við Tyler Alexander-Arnold, bróður hans og umboðsmann, eru þegar hafnar, ef marka má fréttir miðilsins.
Trent gæti snúið aftur til Liverpool á láni með kaupákvæði, en viðræðurnar eru enn á frumstigi. Fleiri félög hafa einnig sýnt honum áhuga, þar á meðal Chelsea, Manchester City og Arsenal.
Laun Trent eru þó stærsta hindrunin, en hann þénar um 16,7 milljónir evra á ári. Þá vilja Madrídingar alls ekki styggja Jude Bellingham, sem er besti vinur Trent, enda óttast félagið að brottför hans gæti haft veruleg áhrif á miðjumanninn.
Liverpool er á sama tíma í leit að hægri bakverði. Conor Bradley er enn að jafna sig eftir hnéaðgerð og Jeremie Frimpong er sömuleiðis frá vegna meiðsla. Úrúgvæinn Ronald Araujo hefur leyst stöðuna af hendi með stakri prýði, en Liverpool vill engu að síður styrkja sig þar og Trent gæti reynst fullkomin lausn.