Fotbolti.net
01.10.21 - 22:45
Arnar Laufdal Arnarsson

Agla María: Ein besta tilfinningin að verða bikarmeistari

Auglýsing
Tvær stoðsendingar frá Öglu Maríu í kvöld

Tvær stoðsendingar frá Öglu Maríu í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Agla María Albertsdóttir var gjörsamlega frábær í kvöld er Blikar unnu Þrótt Reykjavík 4-0 í bikarúrslitum Mjólkurbikarsins en Agla lagði upp tvö mörk Blika.

"Þetta er gjörsamlega geggjað, þetta er ein besta tilfinningin að verða bikarmeistari" Sagði Agla María í viðtali eftir leik.

Hvernig sá Agla María þennan leik?

" Eftir að við komumst í 2-0 þá fannst mér þetta aldrei vera í hættu þrátt fyrir að Þróttarastelpurnar voru góðar en eftir að við skoruðum þriðja markið þá var þetta bara komið"

Kópacabana stuðningsmannasveit Blika sem og bara allir áhorfendur Blika á leiknum voru í miklu stuði.

"Geggjaður stuðningur, þeir stóðu sig ótrúlega vel og Þróttararnir líka, Köttararnir þannig þetta var geggjuð stund hérna í Laugardalnum"
Er Agla ekkert á leið í atvinnumennsku?

"Það verður bara að koma í ljós á næstu mánuðum"

2. sæti í deild, bikarmeistarar og Blikastelpur komnar í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, hvernig metur Agla þetta tímabil?

"Eins og staðan er núna þá er þetta bara frábært tímabil, erum bikarmeistarar og komnar svona langt í Meistaradeildinni, það er bara frábær árangur þannig við erum bara sáttar með það"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.