Fotbolti.net
01.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Þjóðadeildin í dag - Enginn Ronaldo í Danmörku

Þjóðadeildin í dag - Enginn Ronaldo í Danmörku
Canon

Mynd: FIFA

Það eru átta leikir á dagskrá í Þjóðadeildinni í dag og í kvöld, flestir í A-deild.
Ronaldo yfirgefur landsliðsbúðirnar
TENGT EFNI

Ronaldo yfirgefur landsliðsbúðirnar

Þar eru nokkrir spennandi slagir á dagskrá þar sem eftirvæntasti leikurinn fer fram í Danmörku. Danir taka þar á móti Portúgölum sem eru án Cristiano Ronaldo eftir að hann yfirgaf landsliðsbúðirnar í gær.

Þýskaland er í leit að sínum fyrsta sigri undir stjórn Jürgen Klopp og tekur á móti Serbíu á meðan Holland heimsækir skemmtilegt lið Grikklands.

Martin Ödegaard, Erling Haaland og félagar í norska landsliðinu heimsækja loks Wales.

Í B-deildinni eiga lærlingar Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu heimaleik gegn Austurríki á meðan Ísrael tekur á móti Kósovó.

Að lokum eiga Aserbaídsjan og Malta heimaleiki í D-deildinni.

Þjóðadeildin A
18:45 Danmörk - Portúgal
18:45 Þýskaland - Serbía
18:45 Grikkland - Holland
18:45 Wales - Noregur

Þjóðadeildin B
18:45 Írland - Austurríki
18:45 Ísrael - Kósovó

Þjóðadeildin D
16:00 Aserbaídsjan - Liechtenstein
18:45 Malta - Gibraltar
Þjóðadeildin í dag - Enginn Ronaldo í Danmörku
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.