Fotbolti.net
01.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Vandræðin aukast: Asencio í aðgerð á sköflungi

Vandræðin aukast: Asencio í aðgerð á sköflungi
Canon

Mynd: EPA

Spænski miðvörðurinn Raúl Asencio, sem var meðal annars orðaður við Chelsea og Liverpool í sumar, verður frá keppni út árið eftir að hann fer í aðgerð á sköflungi.
Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi
TENGT EFNI

Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi

Asencio er 23 ára gamall og með samning við Real Madrid til 2031. Spænska risaveldið var reiðubúið til að samþykkja stór tilboð í Asencio í sumar, en varnarmaðurinn kaus að vera áfram í spænsku höfuðborginni.

Asencio hefur spilað 80 leiki á tveimur árum með aðalliði Real Madrid og vekur það athygli að hann á engan leik að baki fyrir spænska landsliðið, hvorki A-landsliðið né yngri liðin.

Hann hefur verið að glíma við mikið af meiðslum að undanförnu og missti af nánast öllu undirbúningstímabilinu. Hann hefur verið á varamannabekknum síðustu þrjá leiki Real Madrid en mun ekki sjást þar í næstu leikjum liðsins.

Hann gæti snúið aftur á völlinn í janúar eða febrúar.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Real Madrid sem er að glíma við mikil meiðslavandræði í varnarlínunni þessa stundina. Miðverðirnir Ibrahima Konaté og Eder Militao eru meiddir á meðan Dean Huijsen er í leikbanni. Antonio Rüdiger er því eini miðvörður Madrídinga sem er við fulla heilsu fyrir næsta leik gegn Villarreal eftir landsleikjahlé.

Meiðsli Konaté eru þó ekki alvarleg og gæti hann náð leiknum gegn Villarreal.
Vandræðin aukast: Asencio í aðgerð á sköflungi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.