Fotbolti.net
01.12.25 - 21:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Alfons hjálpaði Birmingham að sigla sigrinum heim

Championship: Alfons hjálpaði Birmingham að sigla sigrinum heim
Canon

Mynd: Birmingham City

Birmingham 2 - 1 Watford
1-0 Paik Seung-Ho ('31 )
2-0 Demarai Gray ('43 )
2-1 Othmane Maamma ('61 )
Birmingham vann fjórða heimaleikinn í röð í Championship deildinni þegar liðið lagði Watford í kvöld. Alfons Sampsted byrjaði á bekknum en WIllum Þór Willumsson er fjarverandi vegna meiðsla.

Birmingham var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og Paik Seung-Ho kom liðinu yfir með skoti fyrir utan teiginn. Demarai Gray bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiks með laglegu skoti úr teignum í fjærhornið.

Othmane Maamma minnkaði muninn fyrir Watford eftir klukkutíma leik þegar hann skoraði eftir sendingu frá Marc Bola út í teiginn.

Alfons kom inn á þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma og hjálpaði liðinu að sigla sigrinum heim.

Birmingham er í 7. sæti með 29 stig eftir 18 umferðir. Liðið er aðeins stigi frá umspilssæti. Watford er í 15. sæti með 24 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Swansea8+717
2West Ham8+1115
3Middlesbrough8+415
4Wolves7+514
5West Brom8+214
6QPR8+313
7Stoke City8+113
8Bristol City8-113
9Charlton Athletic8-312
10Birmingham8+111
11Millwall8011
12Lincoln City8-111
13Southampton8+910
14Wrexham8-310
15Bolton8-410
16Blackburn809
17Norwich8-19
18Sheffield Utd8-29
19Portsmouth7-18
20Watford8-38
21Cardiff City8-27
22Derby County8-75
23Preston NE8-74
24Burnley8-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.